Ferill 231. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 432  —  231. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Árna Rúnari Þorvaldssyni um ofanbyggðarveg, Elliðavatnsveg/Flóttamannaveg.


     1.      Liggur fyrir ákvörðun um það af hálfu Vegagerðarinnar að hætt verði að skilgreina Elliðavatnsveg/Flóttamannaveg sem skilaveg? Ef svo er ekki, stendur til að endurskoða stöðu hans sem skilavegar af hálfu Vegagerðarinnar?
    Í dag er Vegagerðin veghaldari á þeim hluta Elliðavatnsvegar sem liggur frá Kaldárselsvegi að Vífilsstaðavegi en Kaldárselsvegur er í veghaldi Hafnarfjarðarbæjar og Vífilsstaðavegur í veghaldi Garðabæjar. Elliðavatnsvegur er því ekki hluti af samhangandi stofnvegakerfi þjóðvega á höfuðborgarsvæðinu.
    Í tengslum við breytingu á vegalögum árið 2007 féll Elliðavatnsvegur ekki lengur undir skilgreiningu á stofnvegum á höfuðborgarsvæðinu. Ástand Elliðavatnsvegar frá Kaldárselsvegi að Vífilsstaðavegi var með þeim hætti að ekki var unnt að skila honum til sveitarfélaganna.
    Í tillögu að þingsályktun um samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 sem ekki var afgreidd á Alþingi var gert ráð fyrir fjármagni til endurbóta á Elliðavatnsvegi með það að markmiði að viðkomandi sveitarfélög gætu tekið við veghaldi Elliðavatnsvegar.
    Á undanförnum árum hefur ekki legið fyrir sameiginleg sýn þeirra þriggja sveitarfélaga sem Elliðavatnsvegur tengir saman varðandi legu og hlutverk vegarins.
    Vegagerðin hefur hins vegar átt í samtali með Kópavogsbæ, Garðabæ og Hafnarfirði og á fundi í mars 2025 var stofnaður vinnuhópur þessara aðila sem hefur það hlutverk að skoða framtíðarútfærslu Elliðavatnsvegar og hvort og hvernig hann gæti talist hluti af stofnvegakerfi höfuðborgarsvæðisins. Vinna hópsins er í gangi en áætlað er að niðurstöður vinnuhópsins liggi fyrir í júní 2025.
    Með aukinni umferð á höfuðborgarsvæðinu ásamt stækkun byggðar við Elliðavatnsveg í Hafnarfirði, Garðabæ og í efri byggðum Kópavogs hefur umferð um veginn aukist jafnt og þétt og í dag er ástand vegarins og umferðaröryggi ekki ásættanlegt.
    Vegagerðin hefur lagt áherslu á að sveitarfélögin sem vegurinn tengir saman séu sammála um hlutverk og útfærslur ef hann á að verða hluti af stofnvegum á höfuðborgarsvæðinu.

     2.      Liggja fyrir áætlanir af hálfu Vegagerðarinnar um uppbyggingu ofanbyggðarvegar þar sem nú liggur Elliðavatnsvegur/Flóttamannavegur?
    Ekki liggja fyrir áætlanir um uppbyggingu vegarins að undanskildum athugunum á bættu umferðaröryggi við Urriðaholt með vegamótum og undirgöngum fyrir gangandi vegfarendur.     Vegagerðin gerir ráð fyrir að frekari áætlanir verði gerðar í kjölfar niðurstöðu vinnuhóps Vegagerðarinnar og sveitarfélaganna og að þær geti legið til grundvallar þegar kemur til endurskoðunar samgönguáætlunar sem gert er ráð fyrir að verði lögð fram á Alþingi haustið 2025.