Ferill 232. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 433  —  232. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Árna Rúnari Þorvaldssyni um uppbyggingu og opnun Bláfjallavegar.


     1.      Liggur fyrir mat á því til hvaða framkvæmda og aðgerða þurfi að grípa af hálfu Vegagerðarinnar svo hægt verði að opna Bláfjallaveg að nýju þannig að hann standist öll viðmið er varða vatnsvernd á svæðinu? Ef svo er, liggur fyrir kostnaðarmat á þeim framkvæmdum og aðgerðum?
    Frumdrög að endurbótum Bláfjallavegar voru unnin 2023. Áætlaður kostnaður við endurbyggingu vegarins er 2,5–3 milljarðar kr. miðað við verðlag í janúar 2025. Ekki er mögulegt að segja fyrir fram til um hvort sú útfærsla uppfylli öll viðmið varðandi vatnsvernd en framkvæmdin er tilkynningarskyld til Skipulagsstofnunar. Auk framkvæmdaleyfis þarf jafnframt að sækja um leyfi til heilbrigðiseftirlitsins vegna framkvæmda á vatnsverndarsvæði. Þá er líklegt að gera þurfi breytingu á aðalskipulagi Kópavogsbæjar þar sem vegurinn er skráður sem lokaður vegur á skipulagi sveitarfélagsins.

     2.      Hver er stefna Vegagerðarinnar vegna Bláfjallavegar? Stendur til að opna veginn á nýjan leik og ef svo er, hvenær er stefnt að því að Bláfjallavegur verði opnaður aftur?
    Ekki stendur til að opna Bláfjallaveg að svo stöddu. Umfangsmiklar framkvæmdir þarf til að tryggja umferðaröryggi á veginum og lágmarka hættu á umferðaróhöppum sem gætu haft áhrif á vatnsverndarsvæðið. Þær framkvæmdir eru ekki á áætlun Vegagerðarinnar eins og er enda umfang framkvæmdanna það mikið að það yrði að gera sérstaklega ráð fyrir þeim á samgönguáætlun.