Ferill 353. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 440 — 353. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Telur ráðherra 28. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, ekki eiga við um allar skipanir í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga?
2. Er fyrir hendi einhver sérstök undanþága frá þessari grein hvað varðar skipun í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar?
3. Hver innan Stjórnarráðs Íslands ber ábyrgð á því að ákvæðum jafnréttislaga sé framfylgt í störfum einstakra ráðherra eða ráðuneyta?
Skriflegt svar óskast.