Ferill 354. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 441 — 354. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um milliúttektir og endurskoðun á ferli jafnlaunavottunar.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hver er afstaða ráðherra til álits umboðsmanns Alþingis í máli nr. 12716/2024, frá 16. júlí 2024, um svokallaðar milliúttektir vegna jafnlaunavottunar?
2. Telur ráðherra að lagaskilyrði séu uppfyllt til þess að krefja fyrirtæki og stofnanir um slíkar milliúttektir?
3. Hvað líður endurskoðun á ferli jafnlaunavottunar sem ráðuneytið boðaði og umboðsmaður Alþingis byggði niðurstöðu sína á um að ljúka málinu?
4. Hver er staða fyrirtækja og stofnana sem þegar hafa sótt um jafnlaunavottun í ljósi þess að ráðherra hefur boðað frumvarp sem á að létta á skilyrðum fyrir vottuninni? Mun ráðherra beita sér fyrir frestun á viðurlögum vegna ferlisins á meðan beðið er eftir fyrirhuguðum breytingum?
Skriflegt svar óskast.