Ferill 194. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 443  —  194. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2024.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jón Gnarr, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, og Hildi Edwald, ritara Íslandsdeildar.
    Nefndinni barst ein umsögn, frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, sem er aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Í henni var bent á að samstarf vestnorrænu landanna þriggja stæði á gömlum merg í málefnum tungumálanna og hefði skipt þau miklu máli.
    Með tillögunni er skorað á ríkisstjórnina að vinna að framkvæmd tveggja ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 27.–28. ágúst 2024.
    Í ályktun Vestnorræna ráðsins nr. 1/2024 er lagt til að samstarf Íslands, Færeyja og Grænlands hvað varðar málstefnu og máltækni verði styrkt. Tryggja þurfi lífsþrótt vestnorrænu málanna og auka áherslu á fjárfestingu í mál- og máltækniþróun.
    Í ályktun Vestnorræna ráðsins nr. 2/2024 er lagt til að menntamálaráðherrar vestnorrænu landanna fundi um stefnu landanna í málefnum tungumála og gervigreindar og kanni hvort grundvöllur sé fyrir auknu samstarfi. Eru ráðherrarnir hvattir til að kortleggja þá þróun og uppbyggingu sem á sér stað í hverju landi, hvetja til aukinnar samvinnu meðal aðila á þessu sviði og greiða götu þeirra í slíku samstarfi.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 5. maí 2025.

Pawel Bartoszek,
form.
Sigmar Guðmundsson,
frsm.
Dagbjört Hákonardóttir.
Njáll Trausti Friðbertsson. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Sigurður Helgi Pálmason.
Sigurður Ingi Jóhannsson.