Ferill 357. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 445 — 357. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um flokkun sjúklinga.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
1. Hvort er svar ráðherra á þingskjali 510 á 154. löggjafarþingi eða svar ráðherra á þingskjali 339 á yfirstandandi löggjafarþingi rétt?
2. Ef svar ráðherra á þingskjali 510 á 154. löggjafarþingi er rétt, og þar með að flokkun sjúklinga sé nákvæmari en svo að einvörðungu sé greint á milli sjúkratryggðra og ósjúkratryggðra, hverjir eru undirflokkar sjúkratryggðra sjúklinga og ósjúkratryggðra sjúklinga?
3. Hvaða upplýsingum um þjónustuþega heilbrigðiskerfisins er hægt að ná úr tölvukerfum til að áætla þjónustustig og kostnað til framtíðar?
Skriflegt svar óskast.