Ferill 358. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 446  —  358. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (endurmenntun atvinnubílstjóra).

Flm.: Þorgrímur Sigmundsson, Bergþór Ólason, Karl Gauti Hjaltason, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigríður Á. Andersen, Þorsteinn B Sæmundsson.


1. gr.

    11. mgr. 58. gr. laganna fellur brott.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Atvinnubílstjórar sem eru með réttindi í flokkum C, C1, D og D1 þurfa að endurnýja atvinnuréttindi sín á fimm ára fresti. Til að viðhalda réttindum þurfa bílstjórar að sitja fimm námskeið til endurmenntunar á fimm ára fresti. Námskeiðin eru samtals 35 klukkustundir.
    Endurmenntun ökumanna sem stjórna ökutækjum í atvinnuskyni var EES-innleiðing sem á sjaldnast við hér á landi. Mikill hluti þeirra sem starfa sem atvinnubílstjórar hér á landi keyrir allan sinn starfsferil innan sama regluverks og því mætti telja óþarft fyrir atvinnubílstjóra að sitja endurmenntunarnámskeið sem hugsað er fyrir milliríkjaakstur á Evrópska efnahagssvæðinu.
    Tími og kostnaður við endurmenntunarnámskeið er íþyngjandi, bæði fyrir bílstjóra og atvinnulíf, þar sem sá tími sem bílstjórar missa úr vinnu er dýrmætur.
    Markmiðið með breytingunni er að auðvelda starfsumhverfi fyrir atvinnubílstjóra og íþyngja þeim ekki í störfum sínum og draga úr kostnaði í atvinnulífinu, auk þess sem innleiðingin var á sínum tíma atlaga að atvinnufrelsi bílstjóra.