Ferill 310. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 447  —  310. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um stoðþjónustu.


     1.      Hversu margir starfsmenn á vegum ráðuneytisins starfa við stoðþjónustu? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og starfseiningum.
    Í ráðuneytinu starfa 65 starfsmenn á 7 skrifstofum. Skrifstofur sem um er ræða eru skrifstofa löggjafarmála, skrifstofa réttinda einstaklinga, skrifstofa almanna- og réttaröryggis, skrifstofa réttarfars og stjórnsýslu, skrifstofa jafnréttis- og mannréttindamála, skrifstofa yfirstjórnar og svo skrifstofa fjármála og rekstrar. Undirstofnanir ráðuneytisins eru 39 talsins.
    Í skipuriti er skrifstofa fjármála og rekstrar skilgreind sem stoðskrifstofa en á henni starfa 13 starfsmenn. Sú tala er þó ekki nákvæm þar sem á þeirri skrifstofu er unnið að bókhaldi, móttöku, innkaupum og rekstrargreiningu fyrir hönd ráðuneytisins ásamt öðrum verkefnum sem ekki falla undir stoðþjónustu. Tveir starfsmenn starfa einvörðungu við stoðþjónustu og tveir í skjalavörslu. Ekki er þó mögulegt að tilgreina nákvæman fjölda stöðugilda þeirra sem starfa við stoðþjónustu þar sem verkefni starfsmanna falla oft bæði undir stoðþjónustu og önnur verkefni.

     2.      Að hve miklu leyti nýta viðkomandi einingar sér stoðþjónustu Fjársýslu ríkisins?
    Ráðuneytið er í greiðsluþjónustu hjá Fjársýslunni og er í stöðugum samskiptum við stofnunina vegna bókhalds, uppgjörs, launaafgreiðslu og ráðgjafar í mannauðsmálum. Fjársýslan rekur miðlægt fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins og því er mikið samstarf milli Fjársýslunnar og ráðuneytisins.