Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.
Þingskjal 449 — 176. mál.
Fyrirvari.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011 (leiðrétting, framlenging gildistíma).
Frá umhverfis- og samgöngunefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá innviðaráðuneyti.
Nefndinni bárust engar umsagnir vegna málsins.
Umfjöllun nefndarinnar.
Markmið laga um svæðisbundna flutningsjöfnun er skv. 1. gr. þeirra meðal annars að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur staðsettir nær markaði.
Frumvarpið felur í sér tvær breytingar á lögunum. Annars vegar er lögð til breyting á 3. mgr. 6. gr. laganna um að fella brott tilvísun til heildarfjárhæðar í evrum vegna flutningsjöfnunarstyrkja til framleiðenda, sbr. II. kafla laganna. Í staðinn verði vísað til reglugerðar sem ráðherra setur um viðmið við umreikning styrkfjárhæða í íslenskar krónur og heildarfjárhæðir með hliðsjón af viðmiðum Evrópusambandsins, sbr. reglur Eftirlitsstofnunar EFTA um minniháttaraðstoð. Hins vegar er lagt til að gildistími laganna verði framlengdur til 31. desember árið 2030 enda sé gert ráð fyrir fjármögnun styrkjanna í fjármálaáætlun til næstu fimm ára. Nefndin telur mikilvægt að sá tími verði nýttur til endurskoðunar á löggjöfinni, þ.e. hvort og þá hvernig verði staðið að úthlutun styrkja til jöfnunar flutningskostnaðar milli fyrirtækja á landsbyggðinni og í þéttbýli.
Breytingartillaga.
Lögð er til ein breytingartillaga, sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið, um að í stað orðsins „stofnunarinnar“ í 2. málsl. 1. gr. frumvarpsins komi „Eftirlitsstofnunar EFTA“.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Í stað orðsins „stofnunarinnar“ í 2. málsl. 1. gr. komi: Eftirlitsstofnunar EFTA.
Jens Garðar Helgason var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Halla Hrund Logadóttir skrifar undir álit þetta með fyrirvara um að samhliða samþykkt þessa frumvarps verði auknu fé ráðstafað í flutningsjöfnunarstyrki til að tryggja að allir þeir sem sækja um og uppfylli skilyrðin fái úthlutun.
Alþingi, 6. maí 2025.
| Guðbrandur Einarsson, form. |
Sigurður Helgi Pálmason, frsm. |
Ingibjörg Davíðsdóttir. |
| Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | Dagur B. Eggertsson. | Halla Hrund Logadóttir, með fyrirvara. |
| Jens Garðar Helgason. | Jónína Björk Óskarsdóttir. | Ólafur Adolfsson. |