Ferill 111. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 450  —  111. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um greiðslur yfir landamæri í evrum.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Neytendasamtökunum og Seðlabanka Íslands.
    Nefndinni bárust þrjár umsagnir auk minnisblaðs frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu er lagt til að innleidd verði í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1230 frá 14. júlí 2021 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu (kerfisbinding). Einnig er lagt til að ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 260/2012 frá 14. mars 2012 um að koma á tæknilegum og viðskiptalegum kröfum fyrir millifærslur fjármuna og beingreiðslur í evrum og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 924/2009 hafi áfram lagagildi.
    
Umfjöllun nefndarinnar.
    Reglugerð (ESB) 2021/1230 kveður á um rýmkun á meginreglunni um jöfn gjöld á greiðslur í evrum yfir landamæri. Í því felst að gjöld fyrir greiðslur í evrum til annarra EES-ríkja skuli vera þau sömu og fyrir samsvarandi greiðslur innan lands í innlendum gjaldmiðli, en áður var aðeins miðað við samsvarandi greiðslur innan lands í evrum.
    Í greinargerð frumvarpsins er tekið fram að millifærslur innan lands í íslenskum krónum séu almennt án endurgjalds. Jafnframt segir að takmörkun á gjaldtöku vegna greiðslna yfir landamæri í evrum muni leiða til sparnaðar fyrir greiðendur en lækkunar á tekjum greiðsluþjónustuveitenda. Í umsögn Neytendasamtakanna er framangreindu fagnað. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu taka hins vegar fram í umsögn sinni að krafa um jafna gjaldtöku kunni að leiða til þess að greiðsluþjónustuveitendur endurskoði fyrirkomulag gjaldtöku fyrir millifærslur. Samtökin benda á að kostnaður hér á landi við innlendar millifærslur og evrugreiðslur yfir landamæri sé mjög mismunandi andstætt því sem gerist á evrusvæðinu. Hér á landi þurfi bankar til að mynda að kaupa erlendan gjaldeyri af millibönkum.
    Þá vekja Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu athygli á vinnu sem aðilar fjármálakerfisins standi að um nýja rauntímamiðlun (NRM), sem miði að því að greiðslumiðlun hér á landi færist frá séríslensku fyrirkomulagi yfir í staðlað samskiptaform til samræmis við það sem tíðkast í Evrópu. Í ljósi þess telja samtökin að heppilegast væri að fresta ákvæðum frumvarpsins sem kveða á um jafna gjaldtöku þar til NRM-verkefninu lýkur.
    Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis er bent á að frumvarpið kveði á um að reglugerð (ESB) 2021/1230 verði lögfest í heild sinni. Ekki sé gert ráð fyrir þeim möguleika að lögfesta að sinni aðeins afmarkaða hluta reglugerðarinnar. Þá er áréttað að reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 frá 5. júlí 2024. Meiri hlutinn tekur því undir afstöðu ráðuneytisins að Ísland sé þjóðréttarlega skuldbundið til að innleiða gerðina sem slíka, sbr. a-lið 7. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
    
Breytingartillögur.
    Í 4. gr. frumvarpsins er kveðið á um að Fjármálaeftirlitið geti lagt stjórnvaldssektir á greiðsluþjónustuveitanda sem brýtur gegn ákvæðum reglugerðar (ESB) 2021/1230 eða reglugerðar (ESB) nr. 260/2012. Í umsögn Seðlabanka Íslands var gerð athugasemd við ákvæðið og það ekki talið uppfylla kröfur sem gera verði til skýrleika viðurlagaheimilda. Taldi Seðlabankinn að sektarheimildin væri ekki nægilega afmörkuð og það mætti álykta sem svo að brot gegn öllum ákvæðum beggja reglugerðanna gætu varðað stjórnvaldssektum. Meiri hlutinn tekur undir athugasemd Seðlabankans og leggur til breytingu á 4. gr. frumvarpsins þess efnis að ákvæði reglugerðanna sem varðað geta stjórnvaldssektum verði sérstaklega tilgreind. Í athugasemdum við 4. gr. eru talin upp ákvæði reglugerðar (ESB) 2021/1230 sem brot gegn gætu varðað stjórnvaldssekt. Þá varða tiltekin ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 nú þegar stjórnvaldssektum, sbr. lög um greiðslur yfir landamæri í evrum, nr. 78/2014. Leggur meiri hlutinn til breytingu í samræmi við framangreint.
    Jafnframt leggur meiri hlutinn til tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif. Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
    

    BREYTINGU:

    
     1.      Á eftir orðinu „Sambandinu“ í 1. mgr. 1. gr. komi: (kerfisbinding).
     2.      Í stað „1. mgr. 49. gr., 2. mgr. 45. gr.“ í 5. tölul. 2. gr. komi: 2. mgr. 45. gr., 1. mgr. 49. gr.
     3.      1. mgr. 4. gr. orðist svo:
             Fjármálaeftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á greiðsluþjónustuveitanda sem brýtur gegn eftirtöldum ákvæðum reglugerðar (ESB) 2021/1230 og reglugerðar (ESB) nr. 260/2012:
              1.      3. gr. reglugerðar (ESB) 2021/1230 um gjöld sem greiðsluþjónustuveitandi leggur á notanda greiðsluþjónustu.
              2.      4. gr. reglugerðar (ESB) 2021/1230 um skyldu greiðsluþjónustuveitanda til að birta notanda greiðsluþjónustu upplýsingar um gjöld vegna umreiknings gjaldmiðils í tengslum við kortatengdar greiðslur.
              3.      5. gr. reglugerðar (ESB) 2021/1230 um skyldu greiðsluþjónustuveitanda til að birta notanda greiðsluþjónustu upplýsingar um gjöld vegna umreiknings gjaldmiðils í tengslum við millifærslu fjármuna.
              4.      6. gr. reglugerðar (ESB) 2021/1230 um skyldu greiðsluþjónustuveitanda til að greiða fyrir sjálfvirkni greiðslna og heimild hans til innheimtu viðbótargjalda.
              5.      3. gr. reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 um aðgengi að greiðsluþjónustuveitanda vegna greiðslna og beingreiðslna yfir landamæri.
              6.      4. gr. reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 um þau skilyrði sem greiðslufyrirkomulag sem greiðsluþjónustuveitandi ætlar sér að nota þarf að uppfylla.
              7.      5. gr. reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 um kröfur til greiðsluþjónustuveitanda varðandi millifærslur fjármuna og beingreiðslufærslur.
              8.      8. gr. reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 um hvenær greiðsluþjónustuveitanda er heimilt að leggja á millibankagjöld fyrir beingreiðslufærslur.
              9.      9. gr. reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 um aðgengi að greiðslum.
    
    Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 6. maí 2025.

Arna Lára Jónsdóttir,
form., frsm.
Pawel Bartoszek. Ragnar Þór Ingólfsson.
Sigmundur Ernir Rúnarsson. Sindri S. Kristjánsson.