Ferill 234. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 451  —  234. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um endurhæfingu ungs fólks.


     1.      Hversu margir einstaklingar á aldrinum 18–29 ára, sem falla undir NEET-skilgreiningu um að vera ekki í námi, starfi eða starfsþjálfun, njóta þjónustu á vegum stofnana ráðuneytisins eða aðila sem ráðuneytið á í samstarfi við?
    Stofnanir ráðuneytisins og samstarfsaðilar þess veita þjónustu einstaklingum sem tilheyra NEET-hópnum og eru í þörf fyrir meðferð og endurhæfingu innan heilbrigðiskerfisins. Vísbendingar eru um að allt að 5% ungmenna falli undir NEET-skilgreininguna, en einstaklingar í þessum hópi eru líklegir til að glíma við áskoranir sem gera þeim erfiðara fyrir að komast í virkni, vinnu eða nám, t.d. geðrænar áskoranir. Í sjúkraskrárkerfi og gagnasöfnun sem tengjast starfsemi heilbrigðisráðuneytis er lögð áhersla á upplýsingasöfnun sem tengist heilbrigðisvanda og sjúkdómaflokkun (ICD-10). NEET-skilgreining fellur ekki þar undir og því er breytilegt á milli stofnana ráðuneytisins og aðila sem ráðuneytið á í samstarfi við hvort hægt er að taka út upplýsingar með viðeigandi breytum. Í þessu samhengi er vert að nefna að einhverfa er ekki sjúkdómur heldur fötlun. Landspítali er stærsti þjónustuaðili við NEET-hópinn á vegum heilbrigðisráðuneytisins. Meðfylgjandi tafla sýnir að árið 2024 voru samtals 488 einstaklingar á aldrinum 18–29 ára sem fengu þjónustu innan geðsviðs Landspítala með merkingu um örorkulífeyri og gæti hluti þeirra fallið undir NEET-skilgreiningu. Taflan sýnir hvernig sú tala skiptist í 5 ára aldursflokka (enginn var 15–17 ára) og milli þjónustuforma (legudeild, dagdeild, göngudeild eða bráðamóttaka) á árinu 2024.

Útskriftarár Gjaldskrárflokkur SÍ á þjónustutíma Aldursflokkur Fjöldi kt. Fjöldi lega Fjöldi koma á dag-/göngudeild eða bráðamóttöku
2024 Örorkulífeyrisþegi 18–19 ára 34 37 575
2024 Örorkulífeyrisþegi 20–24 ára 194 150 4.110
2024 Örorkulífeyrisþegi 25–29 ára 260 174 5.864
Samtals 488 361 10.549

     2.      Hvaða rök liggja að baki þeirri ákvörðun að endurnýja ekki þjónustusamning við Janus endurhæfingu?
    Árið 2023 var gerður þríhliða tilraunasamningur milli VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs, Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og Janusar endurhæfingar ehf. Hlutur VIRK í samningnum var 75% og 25% á hendi SÍ en skiptingin endurspeglaði samsetningu þjónustunnar, þ.e. að fjórðungur hennar teldist til heilbrigðisþjónustu, en hlutfallið byggðist á mati Endurhæfingarráðs. Greitt var fyrir þjónustu við 80 einstaklinga óháð nýtingu samningsins. Rýnifundir tilvísandi aðila (Geðheilsuteymi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, meðferðareining lyndisraskana á Landspítala og VIRK) sýndu að umfang og fjöldi tilvísana inn til Janusar endurhæfingar var umtalsvert minni en áætlanir höfðu gert ráð fyrir og því hljóðaði samningurinn upp á þjónustu við mun fleiri einstaklinga en nýttu þjónustuna í raun og ónýtt pláss sem greitt var fyrir voru mörg. Eftir að opnað var fyrir tilvísanir frá fleiri aðilum en þeim sem taldir eru upp hér að framan fór nýting samningsins upp í 59% í apríl 2024. Í kjölfarið óskaði VIRK eftir því við SÍ að nýta breytingarákvæði í samningnum sem tiltók að heimilt væri að breyta fjölda plássa í samningnum með sex mánaða fyrirvara. Forsvarsmenn Janusar neituðu að skrifa undir framlengingu á breyttum samningi. Sumarið 2024 varð ljóst að VIRK myndi ekki endurnýja samninginn og lágu þar fjölþættar ástæður að baki, en jafnframt var það mat sérfræðinga ráðuneytisins og þar með samhljóða mati Endurhæfingarráðs að Janus endurhæfing væri fyrst og fremst virkniúrræði og ekki nema að litlum hluta heilbrigðisþjónusta. Samkvæmt IV. kafla laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, annast Sjúkratryggingar Íslands samningsgerð um veitingu heilbrigðisþjónustu og samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands heyrir atvinnutengd starfsendurhæfing og þjónusta við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir undir félags- og húsnæðismálaráðuneyti. Þjónusta Janusar endurhæfingar hefur verið samningsbundin VIRK frá árinu 2011 og er heilbrigðisráðherra ekki heimilt að fela Sjúkratryggingum að semja um þjónustu sem fellur utan málefnasviðs ráðherra, þ.m.t. starfsendurhæfingu og félagsþjónustu.
    Skrifað var undir samningslok 8. nóvember 2024 af fulltrúm VIRK, SÍ og Janusar þar sem fram kom að samningslok yrðu 31. maí 2025. Þar kom jafnframt fram að verksali (Janus endurhæfing ehf.) skyldi taka þátt í vinnu við verklok og þannig tryggja að viðskilnaður hefði lágmarksáhrif á einstaklinga í þjónustu. Hinn 9. desember sl. ákvað þáverandi heilbrigðisráðherra að auka fjárveitingu um 11 millj. kr. í tengslum við verklok samningsins.

     3.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja að ungt fólk í viðkvæmri stöðu hafi áfram aðgang að sambærilegri geðendurhæfingu og þeirri sem veitt hefur verið af Janusi endurhæfingu?
    Við blasir að lyfta þarf grettistaki þegar kemur að geðheilbrigðisþjónustu og þar er bætt þjónusta við ungt fólk sem fellur undir NEET-skilgreininguna ekki undanskilin. Geðheilbrigðismál eru sérstakt áherslu- og forgangsmál nýrrar ríkisstjórnar og fram undan er vinna við að móta heildstæða stefnu í málaflokknum í samvinnu við félags- og húsnæðismálaráðuneytið en liður í því er að setja á stofn þjónustu og þekkingarmiðstöð vegna taugarþoskaraskana, líkt og lagt er til í skýrslunni Hvert á ég að leita? sem kom út í nóvember sl. Heilbrigðisráðuneytið og VIRK hafa jafnframt hug á áframhaldandi samstarfi um þjónustu við NEET-hópinn. Líkt og fram kemur í svari við 4. tölul. hefur öllum sem njóta þjónustu hjá Janusi nú verið boðin önnur viðeigandi þjónusta í samræmi við þjónustuþarfir hvers og eins.

     4.      Eru fyrirhugaðar aðgerðir til að bregðast við stöðu þessa hóps svo að ekki verði rof á þjónustu við einstaklinga sem nú njóta endurhæfingar?
    Vorið 2024 óskuðu forsvarsmenn Janusar endurhæfingar eftir því að koma starfsemi félagsins fyrir hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Að mati forsvarsmanna myndi flutningur til heilbrigðiskerfisins gera þjónustuna skilvirkari og hagkvæmari með betri nýtingu fjármuna. Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins taldi ekki fagleg rök fyrir því að færa starfsemi Janusar í heild sinni yfir til stofnunarinnar en lagði til að hluti starfseminnar sem teldist til heilbrigðisþjónustu myndi færast yfir. Í lok nóvember afþakkaði stjórn Janusar boðið og töldu að yfirfærslan fæli í sér alvarlega afturför innan geðendurhæfingar og að ljóst væri að aðferðafræði Janusar hentaði engan veginn heilsugæslunni. Frá því að ákvörðun um að endurnýja ekki samninginn við Janus var tekin haustið 2024 hafa forsvarsmenn Janusar, með stuðningi ráðuneytisins, hafið viðræður við Landspítala og Reykjalund um að þessar stofnanir tækju yfir starfsemi Janusar. Þær viðræður báru ekki árangur vegna margs konar skilyrða forsvarsmanna Janusar, t.d. um óbreytta starfsemi, jafnt skipulag, stjórnun og starfsmannahald og kjör starfsmanna. Þá kom ekki til greina af hálfu forsvarsmanna Janusar að sá aðili sem tæki yfir þjónustuna nyti samlegðaráhrifa með því að samþætta þjónustuna sinni starfsemi. Jafnframt var það krafa forsvarsmanna Janusar að heilbrigðisráðuneytið/SÍ myndi fjármagna þau 75% samningsins sem VIRK hafði fjármagnað áður í stað 25% fjármagns frá SÍ vegna læknisfræðilegrar endurhæfingar. Byggðist sú krafa á einhliða mati Janusar sem fram kom á samningstímanum um að endurhæfing hjá Janusi væri einungis læknisfræðileg en ekki starfsendurhæfing og þar með að VIRK ætti ekki að eiga aðkomu að samningnum.
    Eftir að ljóst var að ekki tækist að koma starfsemi Janusar yfir til annarra aðila hefur heilbrigðisráðuneytið í samstarfi við VIRK, meðferðareiningu lyndisraskana á Landspítala og geðheilsuteymi heilsugæslunnar unnið að því að tryggja framhald þjónustu við þá einstaklinga sem Janus þjónustaði á grundvelli samningsins. Öllum einstaklingum sem eru í þjónustu Janusar í gegnum þríhliða samninginn var boðið viðtal við ráðgjafa hjá VIRK til að greina þarfir fyrir áframhaldandi þjónustu og skipuleggja næstu skref í endurhæfingunni í samvinnu við einstaklingana. Sú vinna gengur vel og nú hefur öllum sem nutu þjónustu hjá Janusi verið boðin önnur viðeigandi þjónusta sem tekur mið af þjónustuþörfum hvers og ýmist hjá samningsaðilum VIRK eða á göngudeild lyndisraskana á Landspítala. Því verður ekki rof á þjónustu við þá einstaklinga sem nú njóta endurhæfingar hjá Janusi.

     5.      Hvaða framtíðarsýn hefur ráðherra um stuðning og úrræði fyrir NEET-hópinn og önnur ungmenni með fjölþættar geðrænar og félagslegar áskoranir?
    Margar stofnanir á vegum ráðuneytisins og samstarfsaðila þess veita heilbrigðisþjónustu einstaklingum sem uppfylla skilmerki og myndu teljast til NEET-hópsins. Ef einstaklingar eiga í erfiðleikum með að stunda virkni, vinnu eða nám vegna geðrænna áskorana miðast meðferð og endurhæfing innan geðheilbrigðisþjónustu að því að mæta lífsálfélagslegum þörfum þeirra, þ.m.t. þeirra sem falla undir NEET-skilgreiningu.
    Taugaþroskaröskun getur leitt til þess að einstaklingur falli undir NEET-skilgreiningu því röskunin getur leitt til lítillar virkni eða takmarkaðrar atvinnuþátttöku. Einhverfa fylgir fólki allt lífið og því er þörf á greiningu og viðeigandi þjónustu fyrir alla aldurshópa. Greiningarvinnan er alla jafna gerð samkvæmt klínískum leiðbeiningum og unnin í þverfaglegu teymi heilbrigðisstarfsfólks. Læknir staðfestir síðan greiningu. Viðeigandi þjónusta fyrir einhverfa miðar að því að styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs og virkrar þátttöku í samfélaginu, virkrar tómstundaiðkunar, náms eða atvinnuþátttöku. Samstarf heilbrigðisráðuneytis, félags- og húsnæðismálaráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis er mikilvægt til að bæta og samþætta þjónustu við einhverfa fullorðna í íslensku samfélagi. Þannig má ná fram samlegðaráhrifum fagþekkingar á hverju sviði fyrir sig og koma í veg fyrir togstreitu milli kerfa og tryggja betri þjónustu við einhverfa fullorðna.
    Vinnuhópur sem skoðaði geðheilbrigðisþjónustu fyrir einhverfa 18 ára og eldri á vegum heilbrigðisráðuneytisins lagði til í skýrslunni Hvert á ég að leita? að stofnað yrði þjónustu- og þekkingarsetur einhverfra 18 ára og eldri. Lagt er til að setrið verði samstarfsverkefni heilbrigðisráðuneytis, félags- og húsnæðimálaráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis. Ríkur vilji er hjá heilbrigðisráðherra að fylgja eftir tillögum hópsins um stofnun slíks þekkingarseturs en beðið er eftir niðurstöðum starfshóps á vegum félags- og húsnæðismálaráðherra sem falið var að skoða hvernig væri betur hægt að koma til móts við þarfir einstaklinga með einhverfu með það í huga að styðja þá til virkni, náms eða atvinnu. Heilbrigðisráðherra hefur þegar tekið málið upp við félags- og húsnæðismálaráðherra og er beðið eftir skýrslu starfshóps á vegum þess ráðherra.