Ferill 359. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 452 — 359. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um ráðstafanir vegna alvarlegs flugatviks.
Frá Pawel Bartoszek.
1. Hefur Isavia sett verklagsreglur um notkun miðla í vinnurýmum flugleiðsögu í kjölfar alvarlegs flugatviks 25. febrúar 2024 þegar við lá að tvær flugvélar rækjust saman í nágrenni Reykjavíkurflugvallar meðan flugumferðarstjórar voru að fylgjast með knattspyrnuleik?
2. Telur ráðherra, í ljósi þess að boðað var í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa að reglur yrðu settar um notkun á sjónvarpi, útvarpi, netmiðlum, leikjatölvum, símum og tölvum, að sjónvarpsáhorf flugumferðarstjóra fyrir umrætt atvik hafi verið í samræmi við þágildandi reglur?
3. Hvaða ráðstafana hyggst ráðherra grípa til vegna málsins?
Skriflegt svar óskast.