Ferill 362. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 455 — 362. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um greiðslur til frjálsra félagasamtaka.
Frá Þorsteini B Sæmundssyni.
1. Hversu háar fjárhæðir greiddi félags- og húsnæðismálaráðuneytið og fyrirrennarar þess til frjálsra félagasamtaka á hverju ári undanfarin átta ár?
2. Hvaða félagasamtök fengu á því tímabili styrki frá ráðuneytinu, bæði beina rekstrarstyrki og styrki til verkefna, og hver var upphæð hvers styrks?
Skriflegt svar óskast.