Ferill 367. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 460 — 367. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um greiðslur til frjálsra félagasamtaka.
Frá Þorsteini B Sæmundssyni.
1. Hversu háar fjárhæðir greiddi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og fyrirrennarar þess til frjálsra félagasamtaka á hverju ári undanfarin átta ár?
2. Hvaða félagasamtök fengu á því tímabili styrki frá ráðuneytinu, bæði beina rekstrarstyrki og styrki til verkefna, og hver var upphæð hvers styrks?
Skriflegt svar óskast.