Ferill 338. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 464 — 338. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Jakobi Frímanni Magnússyni um ferðaþjónustu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hyggst ráðherra hefja markaðssókn á lykilmarkaði ferðaþjónustunnar í ljósi samdráttar í atvinnugreininni? Ef svo er, hvenær og með hvaða hætti?
Í ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030 sem samþykkt var á Alþingi í júní 2024 er aðgerð um markvissa og viðvarandi markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað ferðamanna. Í lok árs 2024 undirrituðu menningar- og viðskiptaráðuneytið og Íslandsstofa samning um markaðsverkefnið Ferðaþjónusta til framtíðar, í tengslum við þá aðgerð. Með samningnum voru Íslandsstofu tryggðar 200 millj. kr. til þess að markaðssetja áfangastaðinn árið 2025.
Verkefnið miðar að neytendamarkaðssetningu á völdum mörkuðum erlendis. Markmið þess er að viðhalda og koma á framfæri ímynd og orðspori Íslands sem leiðandi í sjálfbærri þróun, styrkja ímynd Íslands sem áfangastaðar, viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og miðla réttum upplýsingum um stöðu mála ef upp koma náttúruhamfarir eða önnur áföll.
Íslandsstofa hefur umsjón með framkvæmd verkefnisins og ber ábyrgð á framvindu þess og að unnið sé í samræmi við þau markmið sem sett hafa verið fram.