Ferill 372. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 466  —  372. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um tryggingu áframhaldandi samþættrar, einstaklingsmiðaðrar geðendurhæfingar fyrir ungmenni með fjölþættan vanda í kjölfar lokunar Janusar endurhæfingar.


Flm.: Ingibjörg Isaksen, Sigurður Ingi Jóhannsson, Jónína Brynjólfsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Halla Hrund Logadóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Hildur Sverrisdóttir, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Jens Garðar Helgason, Jón Gunnarsson, Jón Pétur Zimsen, Njáll Trausti Friðbertsson, Ólafur Adolfsson, Rósa Guðbjartsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.


    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra í samvinnu við félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra:
     1.      að gera þjónustusamning við Janus endurhæfingu ehf. eða sambærilegan þjónustuaðila til að tryggja áframhaldandi samfellda og sérhæfða geðendurhæfingu fyrir ungmenni með alvarlegan, fjölþættan vanda,
     2.      að setja á laggirnar starfshóp með þátttöku fulltrúa heilbrigðis-, félags- og menntakerfis, fagfólks, notenda og aðstandenda, sem skili tillögum um framtíðarfyrirkomulag samþættrar geðendurhæfingar fyrir ungmenni eigi síðar en 1. janúar 2026,
     3.      að kanna og útfæra mögulegt samningsform og ábyrgðarskiptingu milli ríkisins, VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs, sveitarfélaga og Sjúkratrygginga Íslands, með það að markmiði að tryggja langtímafjármögnun og gæði þjónustunnar á landsvísu.

Greinargerð.

1. Forsaga og mikilvægi samþættrar geðendurhæfingar.
    Janus endurhæfing hefur í rúmlega 25 ár veitt einstaka samþætta þjónustu fyrir ungmenni með alvarlegan geðrænan og félagslegan vanda. Úrræðið hefur byggst á þverfaglegu samstarfi geðlækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa og félagsráðgjafa og sameinað geðheilbrigðis-, félags- og starfsendurhæfingu undir einu þaki. Sú samfellda þjónusta sem þar hefur verið veitt hefur stuðlað að aukinni virkni, bættum lífsgæðum og fyrirbyggt örorku ungs fólks á mótandi skeiði.
    Nýjustu alþjóðlegu rannsóknir staðfesta að samþætt geðendurhæfing, einstaklingsmiðuð og miðuð að ungmennum, skilar marktækum árangri í bættri geðheilsu, minni þörf á bráðaúrræðum, betri náms- og starfsfærni og aukinni þátttöku í samfélaginu.

2. Afleiðingar þjónustuskerðingar.
    Lokun sambærilegra úrræða erlendis hefur ítrekað leitt til aukins nýgengis alvarlegra geðraskana, fjölgunar sjálfsvíga og aukins álags á bráða- og sjúkrahúsþjónustu. Á Íslandi hafa fagaðilar, aðstandendur og notendur lýst verulegum áhyggjum af því að skortur á sérhæfðu, samþættu úrræði muni hafa alvarlegar afleiðingar fyrir viðkvæman hóp ungmenna sem nú þegar stendur höllum fæti í samfélaginu.
    Skýr gögn sýna að tafarlaus íhlutun og samfella í þjónustu eru lykilatriði í að ná árangri í meðhöndlun geðraskana hjá ungu fólki. Langvarandi bið eða rof í þjónustukeðju dregur verulega úr líkum á bata.

3. Erlend fordæmi.

    Sambærileg úrræði erlendis, svo sem Headspace í Ástralíu, Jigsaw á Írlandi og Foundry í Kanada, hafa skilað mælanlegum árangri og sparað verulegan samfélagslegan kostnað með aukinni þátttöku ungmenna í námi, starfi og samfélaginu almennt. Þessi úrræði eru fjármögnuð af hinu opinbera og byggjast á samþættri þverfaglegri nálgun, þar sem þjónustan er aðgengileg, ungt fólk þarf ekki að flakka milli stofnana og einstaklingsmiðuð þjónusta er í fyrirrúmi.

4. Staða á Íslandi.
    Ísland býr ekki að sambærilegu samþættu úrræði sem getur tekið við þjónustuhlutverki Janusar endurhæfingar. Aðrir þjónustuveitendur, svo sem VIRK Starfsendurhæfingarsjóður eða geðheilsuteymi heilsugæslunnar, sinna takmörkuðum þáttum þjónustunnar, en ekki samfelldri, samþættri geðendurhæfingu með sérhæfingu fyrir fjölþættan vanda ungmenna.
    Verði þjónustan sem Janus veitir ekki tryggð áfram má vænta aukinnar bráðameðferðarþarfar, félagslegrar einangrunar, langtímaörorku og heilsufarslegrar hnignunar í þessum viðkvæma hópi.
    Með samþykkt tillögunnar gefur Alþingi skýr skilaboð um að réttindi og velferð ungs fólks með flókin geðræn og félagsleg vandamál séu í forgangi.