Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 467, 156. löggjafarþing 173. mál: ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf. (framkvæmd markaðssetts útboðs).
Lög nr. 22 8. maí 2025.
Þingskjal 467, 156. löggjafarþing 173. mál: ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf. (framkvæmd markaðssetts útboðs).
Lög nr. 22 8. maí 2025.
Lög um breytingu á lögum um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf., nr. 80/2024 (framkvæmd markaðssetts útboðs).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:- 1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Markaðssett útboð skal auglýst samhliða birtingu útboðslýsingar og standa yfir í þrjá daga hið minnsta.
- 1.–3. málsl. 3. mgr. orðast svo: Markaðssettu útboði skal skipt í tilboðsbók A, tilboðsbók B og tilboðsbók C. Sala samkvæmt tilboðsbók A skal hafa forgang við úthlutun, síðan sala samkvæmt tilboðsbók B og loks sala samkvæmt tilboðsbók C. Lágmarkstilboð skal vera 100.000 kr. í tilboðsbók A, 2.000.000 kr. í tilboðsbók B og 300.000.000 kr. í tilboðsbók C.
- Í stað orðsins „heildarmagni“ í 2. málsl. b-liðar 3. mgr. kemur: grunnmagni.
- Við 3. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Í tilboðsbók C skal vera heimilt að gera tilboð m.a. á grundvelli markaðsþreifinga í aðdraganda útboðsins. Söluverð skal vera hið sama og í tilboðsbók B og tilboðsgjöfum í tilboðsbók C skal gefinn kostur á að hækka tilboðsverð sín til jafns við verðið í tilboðsbók B hafi tilboð þeirra verið lægri. Einungis eftirlitsskyldum fagfjárfestum sem gera tilboð fyrir eigin reikning og uppfylla það skilyrði að samanlögð fjárhæð eigna þeirra sé jafnvirði 70 milljarða kr. eða hærri skal vera heimilt að gera tilboð. Úthlutun í tilboðsbók C skal byggjast á fyrirframákveðnum og birtum viðmiðum sem hafa hagkvæmni útboðsins að leiðarljósi. Í viðmiðunum skal horft til þátttöku í útboðsferlinu, fjárhæðar tilboðs, tímasetningar tilboðs og gæða fjárfestis með vísan til fyrirsjáanlegrar getu og vilja tilboðsgjafa til þess að samþætta til lengri tíma hagsmuni sína við hagsmuni Íslandsbanka hf.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- Tilvísunin „skv. 2. mgr. 4. gr.“ í 2. málsl. 3. mgr. fellur brott.
- Í stað orðanna „ráðherra fela óháðum aðila að“ í 4. mgr. kemur: Ríkisendurskoðun.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 8. maí 2025.