Ferill 87. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 468 — 87. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025–2029.
Frá velferðarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá heilbrigðisráðuneyti, Dýraverndarsambandi Íslands, Dýralæknafélagi Íslands, Persónuvernd og sóttvarnalækni.
Nefndinni bárust fjórar umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Tillagan byggist á vinnu þverfaglegs starfshóps sem skipaður var í desember 2022 og falið að koma með tillögur að aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi. Hópurinn birti skýrslu með tillögum að fimm ára aðgerðaáætlun. Með tillögunum eru lagðar fram sex tilgreindar aðgerðir, sem fela í sér 75 verkefni, með það að markmiði að stuðla að því að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu sýklalyfjaónæmis hér á landi.
Umfjöllun nefndarinnar.
Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi í heiminum og ógnar heilsufarslegu öryggi bæði manna og dýra. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur til að mynda lýst því yfir að sýklalyfjaónæmi sé ein stærsta heilbrigðisógn sem steðjar að heiminum. Þá telji framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að sýklalyfjaónæmi sé ein af þremur helstu heilbrigðisógnum aðildarríkja sambandsins.
Nefndin fjallaði um ábyrga notkun sýklalyfja, bætt aðgengi, nauðsyn þess að tryggja að upplýsingar um lyfjaskort berist tímanlega sem og sýklalyf fyrir dýr. Fram komu ábendingar fyrir nefndinni um að sýklalyfjaávísanir hér á landi væru fleiri en í nágrannalöndunum og við því þyrfti að bregðast.
Nefndin undirstrikar að aðgerðaáætluninni er m.a. ætlað að stuðla að markvissri og skynsamlegri notkun sýklalyfja. Sett eru fram fjögur markmið til að minnka og bæta notkun sýklalyfja hjá mönnum og dýrum. Þar á meðal er efling og þróun rafrænnar skráningar og vöktunar og að stuðlað verði að skynsamlegri sýklalyfjanotkun með aukinni gæðaþróun og leiðbeiningum.
Á Íslandi er útbreiðsla sýklalyfjaónæmis baktería minni en í mörgum öðrum löndum, en hún hefur þó farið vaxandi. Með vaxandi ónæmi baktería gegn sýklum mun meðferð við sjúkdómum takmarkast og kostnaður við meðferð sjúklinga aukast. Nefndin tekur undir markmið tillögu þessarar og telur hana jákvætt skref í að bregðast við þeirri heilbrigðisógn sem sýklalyfjaónæmi er, bæði fyrir menn og dýr. Nefndin telur málefnið brýnt, en eins og áður hefur verið tekið fram er sýklalyfjaónæmi ein sú mesta hætta sem ógnar heilsufarslegu öryggi manna og dýra.
Fjármögnun.
Í þingsályktunartillögunni er gert ráð fyrir kostnaði upp á samtals 1.786 m.kr., sem dreifist á fimm ár, 2025–2029. Gert er ráð fyrir að um 543 m.kr. séu nú þegar innan ramma fjárlaga, því eru verkefni að andvirði um 1.243 m.kr. ófjármögnuð og þar af 293 m.kr. fyrir árið 2025.
Nefndin áréttar að tillaga sem þessi þarf að vera innan þess ramma sem fjármálaáætlun kveður á um, ellegar kemur hún ekki að fullu til framkvæmda. Nefndin beinir því til ráðherra að gera ráð fyrir þeim útgjöldum við forgangsröðun fjármuna innan þess málefnasviðs fjármálaáætlunar sem tillagan fellur undir. Þá beinir nefndin því til ráðherra að gera ráð fyrir þeim útgjöldum, sem falla utan ramma á grundvelli gildandi fjárlaga, í áætlunum ráðuneytisins við uppfærslu á fimm ára fjármálaáætlun fyrir þau ár sem áætlunin tekur til. Löggjafinn, að undangenginni umfjöllun fjárlaganefndar Alþingis, sbr. 6. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, tekur í kjölfarið afstöðu til tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun.
Breytingartillögur.
Hinn 5. mars 2025 var á Alþingi samþykkt tillaga til þingsályktunar um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands (1. mál á yfirstandandi löggjafarþingi). Þá hefur verið birtur forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og samkvæmt honum tekur atvinnuvegaráðuneyti við málaflokkum sem áður heyrðu undir matvælaráðuneyti. Nefndin leggur til breytingar á heiti ráðuneyta í tillögu þessari því til samræmis.
Þá er lögð til orðalagsbreyting við aðgerð 4.4 sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á tillöguna.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Í stað orðsins „matvælaráðuneyti“ hvarvetna í tillögunni komi: atvinnuvegaráðuneyti.
2. Í stað orðsins „þéttbýla“ í liðnum Árangur í aðgerð 4.4 komi: þéttbýlisstaða.
Sigríður Á. Andersen og Rósa Guðbjartsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 7. maí 2025.
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, form. |
Kristján Þórður Snæbjarnarson, frsm. |
Ingibjörg Isaksen. |
| Jón Gnarr. | Jónína Björk Óskarsdóttir. | Njáll Trausti Friðbertsson. |
| Rósa Guðbjartsdóttir. | Sigríður Á. Andersen. | Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. |