Ferill 88. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 475  —  88. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum 2025–2029.

Frá velferðarnefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá heilbrigðisráðuneyti, Landspítala og Geislavörnum ríkisins.
    Nefndinni bárust tvær umsagnir ásamt minnisblaði frá heilbrigðisráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Með tillögunni er lagt til að unnið verði að framkvæmd aðgerðaáætlunar í krabbameinsmálum til ársins 2029. Áætlunin felur í sér 15 aðgerðir í krabbameinsmálum og byggist á skýrslu starfshóps sem falið var að móta tillögur sem tækju til þeirra breytinga og nýjunga sem hafa komið fram í krabbameinsgreiningum, krabbameinsmeðferðum og krabbameinsþjónustu ásamt viðhorfi til krabbameina á síðastliðnum árum.

Umfjöllun nefndarinnar.
Skipulagðar (lýðgrundaðar) krabbameinsskimanir.
    Nefndin fjallaði um þá aðgerð tillögunnar sem snýr að skipulögðum (lýðgrunduðum) skimunum fyrir krabbameinum. Stefnt er að því að fækka tilfellum krabbameina með því að greina forstig meina og koma þannig í veg fyrir krabbamein og greina fleiri krabbamein á snemmstigum. Í því felst að einkennalausir einstaklingar í tilteknum markhópum verði skimaðir fyrir forstigum eða meinum. Alþjóðastofnanir mæla með skipulögðum, lýðgrunduðum skimunum fyrir brjósta-, legháls- og ristilkrabbameinum.
    Í greinargerð með tillögunni kemur fram að grípa þurfi til aðgerða svo að markmið stjórnvalda um þátttöku í skimunum fyrir legháls- og brjóstakrabbameinum náist og að jafnt aðgengi að skimun óháð búsetu, efnahag, fötlun, þjóðerni og öðrum félagslegum þáttum þurfi að vera tryggt. Í umsögn Geislavarna ríkisins er undirstrikað mikilvægi þess að þátttaka í skimunum sé nægileg svo að hún sé skilvirk og þjóni tilgangi sínum. Æskilegt sé að þátttökuhlutfall sé yfir 75%, en samkvæmt þeim upplýsingum sem koma fram í umsögninni hafi þátttaka verið nokkuð lægri á tímabilinu 2021–2023. Nefndin tekur undir framangreind sjónarmið og undirstrikar að til þess að þau markmið náist er mikilvægt að aukið aðgengi almennings að skipulögðum skimunum verði tryggt.
    Stefnt er að því að bjóða upp á skipulagðar ristilskimanir hérlendis sem hingað til hafa ekki staðið til boða ólíkt því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum. Líkt og fram kemur í greinargerð með tillögunni eru krabbamein í ristli og endaþarmi þriðja algengasta dánarorsök af völdum krabbameina hér á landi og árlega greinast að meðaltali um 190 einstaklingar með krabbamein í ristli eða endaþarmi. Samkvæmt gögnum úr krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands er meðalfjöldi látinna af völdum þessara meina 65 á ári.
    Nefndin telur mikilvægt að ráðist verði í þær aðgerðir sem fjallað er um að framan. Líkt og rakið er í greinargerð er talið að skipulögð skimun fyrir krabbameinum í ristli og endaþarmi geti komið í veg fyrir a.m.k. 21% þeirra dauðsfalla sem verða vegna sjúkdómsins á ári meðal einstaklinga á aldrinum 50–74 ára. Nefndin leggur áherslu á að við framkvæmd þeirra aðgerða sem lagðar eru til í tillögunni verði umgjörð skipulagðra skimana og aðgengi að þeim til þess fallin að þau markmið sem lagt er upp með í tillögunni gangi eftir.

Aðgerðir sem varða börn.
    Nefndin fjallaði um að hvaða leyti tillagan eigi við um einstaklinga undir 18 ára aldri en aðgerðir tillögunnar eiga við um alla aldurshópa, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Sem dæmi er sérstaklega lagt til að efla forvarnastarf og heilsueflingu fyrir börn á öllum aldri og að embætti landlæknis verði falið að auka aðgengi að traustum upplýsingum um áhættuþætti og verndandi þætti þar sem sjónum skuli sérstaklega beint að börnum og unglingum. Þá er lagt til að embættinu verði falið að auka aðgengi að traustum og gagnreyndum upplýsingum um skaðsemi notkunar ljósabekkja þar sem sjónum verði sérstaklega beint að einstaklingum undir 18 ára aldri. Í aðgerð 5 er lagt til að stofnað verði krabbameinsráð sem ætlað er að tryggja framgang áætlunarinnar. Lagt er til að í því sitji fulltrúar stofnana og hagsmunasamtaka til að tryggja breiða þekkingu á öllum þjónustustigum. Leggur nefndin áherslu á að í ráðinu sitji fjölbreyttur hópur fulltrúa og að þar fái sjónarmið foreldra barna með krabbamein að heyrast.

Krabbameinsstöð Íslands.
    Í tillögunni er lagt til að stofnuð verði Krabbameinsstöð Íslands sem verði ein sameiginleg miðstöð fyrir þá þjónustu sem veitt er hér á landi til að tryggja gæði þjónustunnar, ásamt því að styðja við rannsókna- og vísindastarf og menntun sérhæfðs starfsfólks í krabbameinsþjónustu sem stenst alþjóðlegan samanburð.
    Í umsögn Landspítala segir að breytingar hafi verið gerðar á þessari aðgerð tillögunnar frá því að málið var lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda. Landspítali telji ávinning af alþjóðlegri gæðavottun þegar ígrundaðan og að nauðsynlegt sé að áfram sé haldið með vottunarferlið án frekari tafa.
    Í minnisblaði frá ráðuneytinu er tekið undir mikilvægi þess að komið verði á fót sameiginlegri miðstöð fyrir þá þjónustu sem veitt er hér á landi til að tryggja gæði krabbameinsþjónustu, ásamt því að styðja við rannsókna- og vísindastarf og menntun sérhæfðs starfsfólks sem stenst alþjóðlegan samanburð. Þá sé áhersla lögð á að tryggja þeim aðgerðum tillögunnar sem lúta að skimunum og snemmgreiningum krabbameina framgang og séu þær því sérstaklega kostnaðarmetnar. Ráðuneytið hyggst samkvæmt því sem fram kemur í minnisblaðinu áfram styðja við stofnun Krabbameinsmiðstöðvar Íslands en í ljósi þess að greining á samlegðaráhrifum við aðra starfsemi Landspítala hefur ekki farið fram sé ekki rétt að kostnaðarmeta aðgerðina sérstaklega í tillögunni.

Fjármögnun tillögunnar.
    Nefndin fjallaði um fjármögnun tillögunnar og áhrif á ríkissjóð. Í greinargerð með tillögunni segir m.a. að stór hluti þeirra aðgerða sem þar eru lagðar til sé fjármagnaður og rúmist innan ramma fjárheimilda. Gert er ráð fyrir kostnaði upp á samtals 2.425 millj. kr. Telji þar mest innleiðing skipulagðrar skimunar fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi sem mun hafa í för með sér kostnað upp á 2.200 millj. kr. Kostnaðurinn dreifist á fimm ára tímabil 2025– 2029. Gert er ráð fyrir að þar af rúmist um 1.000 millj. kr. innan ramma gildandi fjárlaga.
    Nefndin beinir því til heilbrigðisráðuneytis að gert verði ráð fyrir þeim útgjöldum sem falla utan ramma á grundvelli gildandi fjárlaga í áætlunum ráðuneytisins við uppfærslu á fjármálaáætlun næstu fimm ára fyrir þau ár sem stefnan tekur til, þ.e. til ársins 2029. Löggjafinn, að undangenginni umfjöllun fjárlaganefndar Alþingis, sbr. 6. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, tekur í kjölfarið afstöðu til tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að aðgerðir áætlunarinnar verði fjármagnaðar til fulls svo að unnt verði að framkvæma þær, líkt og bent var á við umfjöllun um málið.

Breytingartillögur.
    Nefndin leggur til breytingu á 3. tölul. aðgerðar 1 í samræmi við tillögu sem fram kom í umsögn Geislavarna ríkisins. Þá leggur nefndin til breytingu á fyrirsögn tillögunnar.
    Loks leggur nefndin til breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.

    Að framangreindu virtu leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Við aðgerð 1.
                  a.      Í stað orðsins „sólargeisla“ í 3. tölul. komi: útfjólubláa geisla.
                  b.      Á eftir orðunum „18 ára“ í 6. tölul. komi: aldri.
                  c.      Í stað orðanna „í gegnum verkefnin heilsueflandi samfélög, heilsueflandi skólar og heilsueflandi vinnustaðir“ í 9. tölul. komi: með verkefnum um heilsueflandi samfélög, heilsueflandi skóla og heilsueflandi vinnustaði.
     2.      Fyrirsögn tillögunnar orðist svo: Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum fyrir árin 2025–2029.

    Rósa Guðbjartsdóttir og Sigríður Á. Andersen voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

Alþingi, 7. maí 2025.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,
form.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
frsm.
Ingibjörg Isaksen.
Jón Gnarr. Jónína Björk Óskarsdóttir. Njáll Trausti Friðbertsson.
Rósa Guðbjartsdóttir. Sigríður Á. Andersen. Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.