Ferill 333. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 476  —  333. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um ótekið fæðingarorlof.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hversu margir feður hafa ekki fullnýtt fæðingarorlofsrétt sinn síðustu fimm ár og hver er fjöldi mánaða í óteknu orlofi? Svar óskast sundurliðað eftir árum.

    Foreldrar hafa 24 mánuði frá fæðingu barns, frumættleiðingu barns sem er yngra en átta ára eða töku barns sem er yngra en átta ára í varanlegt fóstur til að nýta rétt sinn til fæðingarorlofs. Í samræmi við framangreint þykir nauðsynlegt að afmarka svar þetta við fæðingarárin 2020–2022 þar sem ekki liggja fyrir endanlegar tölur vegna fæðingaráranna 2023–2024 hvað varðar nýtingu feðra á rétti sínum til fæðingarorlofs. Þá býr Vinnumálastofnun eingöngu yfir upplýsingum um þá feður sem sækja um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og býr stofnunin því ekki yfir upplýsingum um hve margir feður nýta ekkert af rétti sínum til fæðingarorlofs. Þær tölulegu upplýsingar sem hér fara á eftir miðast því við þá feður sem sótt hafa um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði á hverjum tíma.
    Af þeim 3.919 feðrum barna sem fæddust, voru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur árið 2020 voru 1.255 feður sem fullnýttu ekki rétt sinn og voru ónýttir mánuðir 1.716 talsins eða 11% af heildarrétti feðra til fæðingarorlofs vegna þess árs.
    Af þeim 4.239 feðrum barna sem fæddust, voru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur árið 2021 var 1.621 faðir sem fullnýtti ekki rétt sinn og voru ónýttir mánuðir 2.471 talsins eða 13% af heildarrétti feðra til fæðingarorlofs vegna þess árs.
    Af þeim 3.896 feðrum barna sem fæddust, voru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur árið 2022 voru 1.537 feður sem fullnýttu ekki rétt sinn og voru ónýttir mánuðir 2.181 talsins eða 12% af heildarrétti feðra til fæðingarorlofs vegna þess árs.