Ferill 378. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 477 — 378. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um heimavist fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Flm.: Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Jens Garðar Helgason, Vilhjálmur Árnason, Sigurður Ingi Jóhannsson, Halla Hrund Logadóttir.
Alþingi ályktar að fela mennta- og barnamálaráðherra að stofna heimavist við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Heimavistin verði notuð sem búsetuúrræði fyrir framhaldsskólanema á veturna og sem gistiaðstaða fyrir ferðamenn á sumrin. Verkefnið verði samstarfsverkefni opinberra aðila og einkaaðila (e. public-private partnership). Gerður verði langtímaleigusamningur um notkun heimavistarinnar á veturna með það að markmiði að flýta fyrir uppbyggingu varanlegrar aðstöðu. Stefnt verði að því að undirbúningi framkvæmda ljúki árið 2025 og framkvæmdir hefjist í beinu framhaldi.
Greinargerð.
Með því að þróa heimavistina sem samstarfsverkefni opinberra aðila og einkaaðila skapast grundvöllur fyrir hagkvæma og fjölbreytta nýtingu húsnæðisins allt árið um kring. Slík lausn getur jafnframt flýtt fyrir uppbyggingu og tryggt að ungt fólk geti stundað nám óháð búsetu. Æskilegt kann að vera að uppbygging og rekstur heimavistarinnar verði alfarið í höndum einkaaðila en samningur gerður við hið opinbera um afnot á veturna.