Ferill 380. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 479  —  380. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um heilbrigðisþjónustu við hælisleitendur.

Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.


     1.      Hver var kostnaður ríkissjóðs við heilbrigðisþjónustu við hælisleitendur og flóttamenn ár hvert árin 2020–2024?
     2.      Hver var kostnaður ríkissjóðs við túlkaþjónustu í heilbrigðiskerfinu ár hvert á sama árabili?


Skriflegt svar óskast.