Ferill 383. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 482  —  383. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvegaráðherra um rannsóknir á nytjastofnum sjávar.

Frá Vilhjálmi Árnasyni.


     1.      Hvaða rannsóknir standa yfir með það að markmiði að tryggja sem besta auðlindanýtingu á nytjastofnum sjávar?
     2.      Er til áætlun um hvaða rannsóknir þurfi að fara fram? Eru þær rannsóknir nú þegar fjármagnaðar? Ef ekki, er fyrirhugað að fjármagna þær?
     3.      Voru tekin húðsýni af hnúfubökum eða öðrum tegundum hvala árin 2015–2024? Ef svo er, hversu oft og hvaða ár var það gert og hvaða upplýsingar hafa verið unnar úr sýnum?
     4.      Hver eru nýjustu gögn um áhrif afráns hvala á nytjastofna sjávar?
     5.      Hvað annað getur haft áhrif á nytjastofna sjávar og er verið að rannsaka það?


Skriflegt svar óskast.