Ferill 385. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 484 — 385. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um útgjöld til loftslagsmála.
Frá Karli Gauta Hjaltasyni.
1. Hversu mikið fé hefur runnið árlega úr ríkissjóði til loftslagsmála undanfarin tíu ár?
2. Hver eru helstu verkefni sem ráðist hefur verið í á sviði loftslagsmála á umræddu tímabili?
3. Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af þessari ráðstöfun opinbers fjár?
4. Hverjir eru tíu helstu viðtakendur umræddra fjármuna?
Skriflegt svar óskast.