Ferill 160. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 487 — 160. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sviðslistir, nr. 165/2019 (ópera).
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, sviðslistaráði, Íslensku óperunni, Þjóðleikhúsinu, Hörpu, Bandalagi íslenskra listamanna, Fagfélagi klassískra söngvara á Íslandi og Samtökum atvinnulífsins.
Nefndinni bárust 38 umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Efni frumvarpsins.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um sviðslistir, nr. 165/2019, er varða fyrirkomulag óperustarfsemi á Íslandi. Í því er lagt til að stofnuð verði ópera sem starfi sem hluti af Þjóðleikhúsinu og gert er ráð fyrir að hún hafi aðsetur í Hörpu. Verði frumvarpið að lögum er óperunni tryggð sambærileg staða og öðrum sviðslistum og verður hún kjarnastofnun í óperulist á sama hátt og Þjóðleikhúsið í leiklist og Íslenski dansflokkurinn í danslist.
Markmið frumvarpsins er að efla óperulist á Íslandi og tryggja samfelldan og stöðugan grundvöll fyrir óperulist sem grunnstoð í íslensku samfélagi. Lögð er áhersla á að óperan verði aðgengileg almenningi óháð búsetu og efnahag, að verkefnaval verði fjölbreytt og að stefnt verði að nýsköpun og framþróun í óperulist ásamt því að fela óperunni lögbundið fræðslu- og kynningarhlutverk. Jafnframt er lögð áhersla á samnýtingu fag- og stoðdeilda Þjóðleikhússins og náið samstarf við aðrar sviðslistastofnanir. Það efli óperulistina ásamt því að ná fram hagræðingu í rekstri og einföldun í stjórnsýslu. Loks er mikilvægur sá tilgangur frumvarpsins að búa söngvurum og öðru sviðslistafólki traustan starfsgrundvöll hér á landi.
Umfjöllun nefndarinnar.
Listrænt sjálfstæði.
Við meðferð málsins fyrir nefndinni var fjallað um listrænt sjálfstæði óperunnar og stjórnanda hennar innan Þjóðleikhússins og gagnvart ráðherra verði frumvarpið að lögum. Meiri hlutinn leggur áherslu á mikilvægi þess að óperan hafi listrænt sjálfstæði gagnvart ríkinu og að efnisval hennar sé óháð pólitískum afskiptum. Meiri hlutinn telur ekkert í frumvarpinu geta leitt til þess að ráðherra fái meira vald yfir óperunni en öðrum listastofnunum þannig að hætta skapist á listrænum afskiptum ráðherra af starfsemi óperunnar. Í þessu sambandi er jafnframt bent á að Ísland er lýðræðisríki þar sem tjáningarfrelsi er almennt virt. Þá ítrekar meiri hlutinn að reglugerðarheimild frumvarpsins nær ekki til þess að færa ráðherra vald yfir óperunni, heldur er henni fremur ætlað að skýra sjálfstæði óperunnar gagnvart Þjóðleikhúsinu. Meiri hlutinn ítrekar jafnframt hvað þetta varðar að reglugerð getur ekki gengið lengra en þau lög sem hún byggist á. Varðandi óbein áhrif ráðherra á óperuna í gegnum skipun óperustjóra bendir meiri hlutinn á að sú skipun byggist á tillögu hæfnisnefndar. Með vísan til alls framangreinds telur meiri hlutinn stofnun óperu innan Þjóðleikhússins ekki varhugaverða með tilliti til listræns sjálfstæðis gagnvart ráðherra.
Nefndin fjallaði einnig um sjálfstæði óperunnar og stjórnanda hennar gagnvart þjóðleikhússtjóra, einkum í ljósi þess að óperustjóri mun heyra undir hann í skipuriti og skal eiga við hann samráð um gerð fjárhagsáætlana og meiri háttar ákvarðana er varða rekstur óperunnar. Ljóst er að frumvarpið gerir ráð fyrir að þjóðleikhússtjóri og óperustjóri eigi í samvinnu og samstarfi um ýmis atriði, svo sem vegna starfsáætlana, fjárhagsramma og vegna skipulags samnýtingar deilda sem eru nú þegar innan Þjóðleikhússins. Meiri hlutinn bendir hins vegar á að frumvarpið inniheldur ýmis ákvæði sem miða að því að tryggja sjálfstæði óperunnar að þessu leyti. Til að mynda er mælt fyrir um að óperustjóri verði ráðherraskipaður á grundvelli tilnefningar hæfnisnefndar og skýrt tekið fram að hann stýri óperunni og beri ábyrgð á listrænni stefnu hennar. Þá fær óperan sérstakt framlag í fjárlögum og er heimilt að hafa tekjur af eigin starfsemi og taka aðgangseyri. Jafnframt er gert ráð fyrir að óperustjóri beri ábyrgð á rekstri og fjárhag óperunnar, ráði starfsfólk hennar, velji í listrænt teymi fyrir allar uppfærslur og stýri verkefnavali. Þessu fyrirkomulagi er ætlað tryggja bæði faglegt og fjárhagslegt sjálfstæði óperunnar innan Þjóðleikhússins.
Með vísan til framangreinds telur meiri hlutinn að frumvarpið tryggi sjálfstæði óperunnar gagnvart þjóðleikhússtjóra eins og frekast er unnt. Gert er ráð fyrir að óperan njóti mikils sjálfstæðis og að óperustjóri leiði þann hluta starfsins sem lýtur að henni. Meiri hlutinn vísar til þess að í reglugerð gefst tækifæri til að skilgreina nánar verkaskiptingu og samrekstur. Þá bendir meiri hlutinn á að fyrirkomulagið er liður í stærri framtíðarsýn um að sviðslistastofnanir starfi undir sameiginlegri yfirstjórn þar sem hver listgrein hefur sinn listræna stjórnanda.
Hvað varðar sjálfstæði óperunnar gagnvart þjóðleikhúsráði telur meiri hlutinn skýrt af frumvarpinu að hlutverk ráðsins sé ekki að hafa listræn afskipti af óperunni heldur að hafa eftirlit með rekstri hennar og hefur meiri hlutinn ekki áhyggjur af þessu fyrirkomulagi. Þá bætast tveir fulltrúar við þjóðleikhúsráð af vettvangi óperunnar sem tryggir sjálfstæði hennar enn frekar að mati meiri hlutans.
Starfsöryggi.
Verði frumvarpið að lögum verður til starfsgrundvöllur fyrir fjölda söngvara og sviðslistafólks, með stöðugildum fyrir bæði einsöngvara og kórsöngvara, en til langs tíma er stefnt að því að óperan ráði yfir allt að 12 stöðugildum fyrir einsöngvara og 16 hálfum stöðugildum fyrir kór.
Í umsögnum og fyrir nefndinni kom fram mikil ánægja með þetta og tekið var fram að lengi hefði verið barist fyrir starfsöryggi í stéttinni. Lögð var áhersla á mikilvægi þess að tryggja söngvurum stöðugt starfsumhverfi, m.a. til að draga úr hættu á stöðnun í söngmenntun hér á landi og koma í veg fyrir að söngmenntaðir hyrfu úr landi. Þá var bent á að með frumvarpinu yrði söngvurum loks boðin sambærileg staða að lögum og öðrum stéttum listamanna, svo sem leikurum og dönsurum. Frumvarpið hefði jafnframt í för með sér að hægt væri að bjóða upp á samfellda óperustarfsemi í fyrsta sinn sem væri afar mikilvægt skref. Meiri hlutinn fagnar sérstaklega þessum áhrifum frumvarpsins.
Hagræn áhrif.
Við meðferð málsins fyrir nefndinni var fjallað um þau hagrænu áhrif sem stofnun óperu innan Þjóðleikhússins hefði í för með sér. Frumvarpinu er ætlað að efla óperulist á Íslandi með því að skapa henni tryggan lagalegan grundvöll. Ákveðið var reka óperustarfsemi sem hluta af Þjóðleikhúsinu, í stað þess að stofna nýja ríkisstofnun, til að ná fram hagræðingu og samlegðaráhrifum með því að samnýta þær fag- og stoðdeildir sem væru nú þegar til staðar innan Þjóðleikhússins við rekstur óperunnar.
Meiri hlutinn tekur undir þetta markmið frumvarpsins og áréttar einnig að með þessu er komist hjá því að láta fjármuni renna í uppbyggingu fag- og stoðdeilda frá grunni. Óperan nýtur þannig stuðnings allrar stoðstarfsemi Þjóðleikhússins, bæði innviða og þeirrar þekkingar sem þar er á ýmsum sviðum og deildum, svo sem rekstrarsviðs, leikmunadeildar, ljósadeildar, hljóðdeildar, búningadeildar og leikgervadeildar. Gefur það augaleið að mati meiri hlutans að hagkvæmara er að nota þá innviði sem nú þegar eru til staðar í stað þess að byggja upp slíkar fag- og stoðdeildir frá grunni með tilheyrandi kostnaði.
Með vísan til framangreinds fagnar meiri hlutinn því fyrirkomulagi sem verður sett á fót varðandi rekstur óperu innan Þjóðleikhússins verði frumvarpið að lögum og tekur undir mikilvægi þess að óperan geti staðið fyrir samfelldri starfsemi sem nær yfir nýsköpun og þróun listformsins, fræðslustarfsemi, samstarf við landsbyggðina og sjálfstæða hópa auk samvinnu við Listaháskóla Íslands. Meiri hlutinn telur frumvarpið einnig vera lið í yfirlýstu markmiði ríkisstjórnarinnar um að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir. Breytingarnar hafa verið metnar hagkvæmar hvað þessa þætti varða og vísar meiri hlutinn sérstaklega í því sambandi til skýrslu ríkisendurskoðanda til Alþingis frá desember 2021, um stofnanir ríkisins, fjölda, stærð og stærðarhagkvæmni þar sem bent var á tækifæri í þeim efnum hjá menningarstofnunum á sviði sviðslista.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Ingibjörg Isaksen var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 9. maí 2025.
| Víðir Reynisson, form., frsm. |
Grímur Grímsson. | Guðmundur Ari Sigurjónsson. |
| Ingibjörg Isaksen. | Ingvar Þóroddsson. | Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. |