Ferill 316. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 488  —  316. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um stoðþjónustu.


     1.      Hversu margir starfsmenn á vegum ráðuneytisins starfa við stoðþjónustu? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og starfseiningum.
    Í utanríkisráðuneytinu starfa 311 starfsmenn á 9 skrifstofum og 26 sendiskrifstofum. Í skipuriti eru eftirfarandi starfseiningar innan skrifstofa sem sinna m.a. stoðþjónustu: Hluti þjónustuskrifstofu, mannauðsdeild og bókhaldsdeild. Á þessum starfseiningum starfa 25 starfsmenn og á sendiskrifstofum má áætla að 19 stöðugildi sinni stoðþjónustu samantekið. Ekki er mögulegt að tilgreina nákvæman fjölda stöðugilda framangreinds starfsfólks þar sem verkefni starfsmanna falla oft bæði undir stoðþjónustu og önnur verkefni.

     2.      Að hve miklu leyti nýta viðkomandi einingar sér stoðþjónustu Fjársýslu ríkisins?
    Fjársýsla ríkisins sinnir engum verkefnum fyrir utanríkisráðuneytið. Ráðuneytið hefur aðgang að tengiliðum innan fjársýslunnar á sviði bókhalds, mannauðsmála og innkaupa.

    Það tók samanlagt tvær klukkustundir að taka þetta svar saman.