Ferill 386. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 489  —  386. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um eftirfylgni vegna skýrslu um heildarúttekt á þjónustu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hvenær hófst vinna í ráðuneytinu við að rýna það sem fram kemur í heildarúttekt á þjónustu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs er fjallað var um í skýrslu um málið sem kom út í október 2022?
     2.      Liggur fyrir einhver nánari greining ráðuneytisins á þeim ábendingum sem koma fram í skýrslunni?
     3.      Hefur átt sér stað samstarf milli ráðuneytisins og VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs varðandi þær ábendingar sem fram koma í skýrslunni?
     4.      Liggur fyrir úrbótaáætlun um hvernig skuli bregðast við og ef svo er, hvenær var hún kynnt og hvað felst í henni?


Skriflegt svar óskast.