Ferill 281. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 491  —  281. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamnings
milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands.


Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands sem undirritaður var í Davos í Sviss 23. janúar 2025.
    Í greinargerð með tillögunni kemur fram að fríverslunarsamningurinn liðki fyrir vöru- og þjónustuviðskiptum milli samningsaðila og feli auk þess í sér skuldbindingar sem lúta að fjárfestingum, vernd hugverka og sjálfbærri þróun. Í samningnum er kveðið á um niðurfellingu tolla á allar helstu útflutningsafurðir Íslands, ýmist strax við gildistöku hans eða í áföngum á lengra tímabili. Í samningnum er einnig kveðið á um samstarfsverkefni milli íslenskra og taílenskra aðila á sviði sjálfbærra fiskveiða og fiskveiðistjórnar en Taílendingar eru meðal stærstu fiskveiðiþjóða heims. Samningurinn veitir íslenskum fyrirtækjum auknar heimildir til fjárfestinga í Taílandi og bætir aðgang íslenskra þjónustuveitenda að taílenskum markaði.
    Þá kemur fram í greinargerð að vöruútflutningur frá Íslandi til Taílands hafi numið 650 millj. kr. árið 2024 og að verðmæti innfluttra vara frá Taílandi hafi numið 5,7 milljörðum kr. Útflutningur á þjónustu til Taílands nam rúmlega 1,2 milljörðum kr. árið 2023. Á sama tíma nam innflutningur þjónustu rúmlega 1,7 milljörðum kr.
    Nefndin tekur undir það mat að með samningnum sé lagður grunnur að bættri samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja, fjárfesta og einstaklinga í Taílandi.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 9. maí 2025.

Pawel Bartoszek,
form.
Sigmar Guðmundsson, frsm. Dagbjört Hákonardóttir.
Diljá Mist Einarsdóttir. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Sigurður Helgi Pálmason.
Sigurður Ingi Jóhannsson. Víðir Reynisson.