Ferill 147. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 492  —  147. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða og skipulagslögum (svæðisráð o.fl.).

Frá Jóni Gunnarssyni.


     1.      Efnismálsliðir b-liðar 1. gr. orðist svo: Ráðherra skipar átta fulltrúa í svæðisráð, sjö samkvæmt tilnefningum aðliggjandi sveitarfélaga og einn samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem jafnframt skal gegna formennsku í ráðinu. Jafn margir varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Á skipunartíma svæðisráðs er ráðherra heimilt að skipta út fulltrúum og varafulltrúum að beiðni tilnefningaraðila.
     2.      Við 7. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: 3. mgr. 15. gr. laganna orðast svo:
                      Þær reglugerðir sem kveðið er á um í lögum þessum skulu settar að fengnum tillögum Skipulagsstofnunar og að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga.