Ferill 314. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 493 — 314. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um stoðþjónustu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margir starfsmenn á vegum ráðuneytisins starfa við stoðþjónustu? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og starfseiningum.
2. Að hve miklu leyti nýta viðkomandi einingar sér stoðþjónustu Fjársýslu ríkisins?
Fjármála- og efnahagsráðuneytið skiptist í sjö skrifstofur; skrifstofu efnahagsmála, skrifstofu fjármálamarkaðar, skrifstofu opinberra fjármála, skrifstofu skattamála, skrifstofu stjórnunar og umbóta, skrifstofu yfirstjórnar og skrifstofu rekstrar og innri þjónustu. Að auki er kjara- og mannauðssýsla ríkisins hluti af ráðuneytinu auk verkefnastofu um Stafrænt Ísland. Samtals starfa um 100 manns í heildina á aðalskrifstofu ráðuneytisins og sérstökum starfseiningum þess. Í skipuriti ráðuneytisins starfar skrifstofa rekstrar og innri þjónustu þvert á framangreinda starfsemi en á henni starfa 12 starfsmenn sem sinna fjölbreyttum verkefnum. Skrifstofan annast rekstur og fjármál ráðuneytisins og vinnur að framþróun í starfsumhverfis- og mannauðsmálum. Hún hefur umsjón með upplýsingamiðlun og fjölmiðlasamskiptum auk þess að sinna gæða- og skjalamálum. Jafnframt sinnir skrifstofan fjölda annarra verkefna og má þar nefna þróun og nýtingu upplýsingatækni og gagnamála innan ráðuneytisins auk þess að koma að verkefnum fyrir Stjórnarráðið í heild, m.a. í tengslum við ferla og kerfi við gerð fjármálaáætlana og fjárlagagerð. Þá hefur skrifstofan umsjón með fjárveitingum til stofnana ráðuneytisins og hefur eftirlit með rekstri þeirra ásamt því að vinna að stefnumótun og árangursstjórnun er þeim við kemur. Þar sem verkefni starfsmanna falla oft bæði undir stoðþjónustu og önnur verkefni er ekki mögulegt að tilgreina nákvæman fjölda stöðugilda þeirra sem starfa beint við stoðþjónustu.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið nýtir sér stoðþjónustu Fjársýslu ríkisins og er í bókhalds- og greiðsluþjónustu hennar auk þess sem Fjársýslan sinnir launaþjónustu fyrir ráðuneytið. Þá nýtir ráðuneytið sér innkaupaþjónustu Fjársýslunnar, bæði rammasamninga og útboðsþjónustu.