Ferill 124. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Nr. 5/156.

Þingskjal 495  —  124. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun), nr. 145/2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og nr. 170/2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 frá 20. júní 2019 um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur og um breytingu á tilskipun 2004/42/EB og reglugerðum (EB) nr. 765/2008 og (ESB) nr. 305/2011.
                  b.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1121 frá 8. júlí 2021 þar sem tilgreindar eru upplýsingar um tölfræðileg gögn, sem aðildarríkin eiga að leggja fram að því er varðar eftirlit með vörum sem koma inn á markað Sambandsins, með tilliti til öryggis og samræmis vara.
                  c.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1267 frá 20. júlí 2022 um að tilgreina verklagsreglur við tilnefningu prófunarstöðva Sambandsins vegna markaðseftirlits og sannprófunar á samræmi vöru við kröfur í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2401 frá 12. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki.
                  b.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012.
                  c.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/557 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun til að stuðla að endurbótum í kjölfar COVID-19 hættuástandsins.
                  d.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/558 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar aðlögun á rammanum um verðbréfun til að styðja við efnahagslegar endurbætur til að bregðast við COVID-19 hættuástandinu.
                  e.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1221 frá 1. júní 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar útreikning á lögbundnum gjaldþolskröfum fyrir verðbréfanir og einfaldar, gagnsæjar og staðlaðar verðbréfanir í eigu vátrygginga- og endurtryggingafélaga.
     3.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 frá 5. júlí 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1230 frá 14. júlí 2021 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu (kerfisbinding).

Samþykkt á Alþingi 14. maí 2025.