Ferill 281. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Nr. 7/156.
Þingskjal 500 — 281. mál.
Þingsályktun
um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands sem undirritaður var 23. janúar 2025 í Davos í Sviss.
Samþykkt á Alþingi 15. maí 2025.