Ferill 399. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 514 — 399. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um samgöngur milli lands og Vestmannaeyja.
Frá Gísla Stefánssyni.
1. Hyggst ráðherra tryggja á þessu ári fjármagn sem þarf til að hefja rannsóknir á jarðlögum í Vestmannaeyjum í samræmi við ráðleggingar starfshóps um fýsileika jarðganga milli lands og Vestmannaeyja?
2. Hvaða leiðir hyggst ráðherra ráðast í til að gera Landeyjahöfn að þeirri heilsárshöfn sem lagt var upp með þegar höfnin var upphaflega tekin í notkun til ferjusiglinga milli lands og Eyja?
Skriflegt svar óskast.