Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 519 — 176. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011 (leiðrétting, framlenging gildistíma).
(Eftir 2. umræðu, 19. maí.)
1. gr.
Heildarfjárhæð flutningsjöfnunarstyrkja skal ákveðin með reglugerð sem ráðherra setur. Flutningsjöfnunarstyrkir til hvers framleiðanda mega ekki fara fram úr fjárhæð þeirri í gjaldmiðli Evrópusambandsins á þriggja ára tímabili sem Evrópusambandið tilgreinir sem minniháttaraðstoð Eftirlitsstofnunar EFTA og er þar af leiðandi ekki tilkynningarskyld til Eftirlitsstofnunar EFTA. Við umreikning í íslenskar krónur skal miða við gengi samkvæmt reglum sem kveðið er á um í reglugerð sem ráðherra setur. Við útreikning hámarksfjárhæðar skal reikna með aðra styrki sem framleiðandi hefur fengið frá opinberum aðilum. Í þessu sambandi eru þó undanskildir sérstakir styrkir sem aðili hefur fengið samkvæmt styrkjareglum sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur samþykkt.
2. gr.
3. gr.