Ferill 87. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Nr. 8/156.
Þingskjal 522 — 87. mál.
Þingsályktun
um aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025–2029.
Alþingi ályktar að samþykkja eftirfarandi aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis sem feli í sér eftirfarandi aðgerðir:
1. Stuðla að markvissri og skynsamlegri notkun sýklalyfja hjá mönnum og dýrum.
2. Takmarka útbreiðslu sýklalyfjaónæmis með upplýsingagjöf, fræðslu og forvörnum.
3. Bæta þekkingu á sýklalyfjaónæmi með vöktun og vísindarannsóknum.
4. Hefta útbreiðslu sýklalyfjaónæmis með íhlutandi aðgerðum.
5. Auka þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi.
6. Tryggja samhæfingu og stjórn aðgerða gegn sýklalyfjaónæmi til framtíðar.
1. Stuðla að markvissri og skynsamlegri notkun sýklalyfja hjá mönnum og dýrum.
Í þessari aðgerð verði sett eftirfarandi fjögur markmið til að minnka og bæta notkun sýklalyfja hjá mönnum og dýrum:
1.1. Efla og þróa rafrænar skráningar og vöktun sýklalyfjaávísana hjá mönnum.
Ábyrgð: Embætti landlæknis, sóttvarnalæknir og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.
Árangur: Sýklalyfjaávísanir fyrir menn skráðar í miðlæga gagnagrunna. Upplýsingar aðgengilegar og birtar í eftirlitsskýrslum.
1.2. Stuðla að minni og skynsamlegri sýklalyfjanotkun manna með aukinni gæðaþróun og leiðbeiningum.
Ábyrgð: Landspítali, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og sóttvarnalæknir.
Árangur: Skilgreindar stofnanir annist virka sýklalyfjagæslu.
1.3. Efla og þróa rafrænar skráningar og vöktun sýklalyfjaávísana hjá dýrum.
Ábyrgð: Matvælastofnun og atvinnuvegaráðuneyti.
Árangur: Sýklalyfjaávísanir fyrir dýr skráðar í miðlæga gagnagrunna. Upplýsingar aðgengilegar og birtar í eftirlitsskýrslum.
1.4. Stuðla að skynsamlegri sýklalyfjagjöf dýra með aukinni gæðaþróun og leiðbeiningum.
Ábyrgð: Matvælastofnun og heilbrigðisráðuneyti.
Árangur: Skilgreindir aðilar annist virka sýklalyfjagæslu.
2. Takmarka útbreiðslu sýklalyfjaónæmis með upplýsingagjöf, fræðslu og forvörnum.
Í þessari aðgerð verði sett eftirfarandi fimm markmið til að auka upplýsingagjöf, fræðslu og forvarnir fyrir almenning, heilbrigðisstéttir, starfsfólk í velferðarþjónustu, dýralækna og matvælaframleiðendur um mikilvægi skynsamlegrar sýklalyfjanotkunar og mikilvægi sóttvarna:
2.1. Auka þekkingu almennings á sýklalyfjaónæmi, notkun sýklalyfja og sóttvörnum.
Ábyrgð: Sóttvarnalæknir, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Matvælastofnun, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og heilbrigðisráðuneyti.
Árangur: Aukin þekking almennings á sýklalyfjaónæmi, notkun sýklalyfja og sóttvörnum.
2.2. Auka þekkingu heilbrigðisstarfsmanna og starfsmanna í velferðarþjónustu á sýklalyfjaónæmi, notkun sýklalyfja og sóttvörnum.
Ábyrgð: Sóttvarnalæknir og heilbrigðisráðuneyti.
Árangur: Aukin þekking heilbrigðisstarfsmanna og starfsmanna í velferðarþjónustu á sýklalyfjaónæmi, notkun sýklalyfja og sóttvörnum.
2.3. Auka þekkingu dýralækna á sýklalyfjaónæmi, notkun sýklalyfja og sóttvörnum.
Ábyrgð: Matvælastofnun.
Árangur: Aukin þekking dýralækna á sýklalyfjaónæmi, notkun sýklalyfja og sóttvörnum.
2.4. Auka þekkingu matvælaframleiðenda og annarra matvælafyrirtækja á sýklalyfjaónæmi, notkun sýklalyfja og sóttvörnum.
Ábyrgð: Matvælastofnun.
Árangur: Aukin þekking matvælaframleiðenda og annarra matvælafyrirtækja á sýklalyfjaónæmi, notkun sýklalyfja og sóttvörnum.
2.5. Minnka líkur á sýkingum hjá almenningi í samfélaginu.
Ábyrgð: Sóttvarnalæknir.
Árangur: Faraldsfræði tilgreindra sýkinga þekkt.
3. Bæta þekkingu á sýklalyfjaónæmi með vöktun og vísindarannsóknum.
Í þessari aðgerð verði sett eftirfarandi sex markmið til að bæta þekkingu á sýklalyfjaónæmi með vöktun og vísindarannsóknum:
3.1. Samræma tilkynningar- og skráningarskyldu á öllum sýklalyfjaónæmum bakteríum í anda einnar heilsu hjá mönnum, dýrum, í matvælum og umhverfinu.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneyti og atvinnuvegaráðuneyti.
Árangur: Skráning á tilgreindum sýklalyfjaónæmum bakteríum samræmd.
3.2. Bæta yfirsýn og þekkingu á útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería hjá mönnum.
Ábyrgð: Landspítali, sóttvarnalæknir og Matvælastofnun.
Árangur: Þekkt útbreiðsla tiltekinna sýklalyfjaónæmra baktería í mönnum.
3.3. Bæta yfirsýn og þekkingu á útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería hjá dýrum og í matvælum.
Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti og Matvælastofnun.
Árangur: Þekkt útbreiðsla tiltekinna sýklalyfjaónæmra baktería í hópum dýra.
3.4. Bæta yfirsýn og þekkingu á útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería og sýklalyfjaleifa í umhverfinu.
Ábyrgð: Umhverfis- og orkustofnun.
Árangur: Þekkt útbreiðsla tiltekinna sýklalyfjaónæmra baktería og sýklalyfjaleifa í umhverfinu.
3.5. Efla grunnrannsóknir á sýklalyfjaónæmi í anda einnar heilsu.
Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
Árangur: Aukin þekking á sýklalyfjaónæmi og útbreiðslu þess.
3.6. Efla og samræma heilgenaraðgreiningar á öllum sýklalyfjaónæmum bakteríum í anda einnar heilsu.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneyti.
Árangur: Allar heilgenaraðgreiningar á sýklalyfjaónæmum bakteríum gerðar á Íslandi.
4. Hefta útbreiðslu sýklalyfjaónæmis með íhlutandi aðgerðum.
Í þessari aðgerð verði sett eftirfarandi fimm markmið til að hefta útbreiðslu sýklalyfjaónæmis með íhlutandi aðgerðum:
4.1. Tryggja viðeigandi viðbrögð við greiningu tiltekinna ónæmra baktería hjá mönnum með gerð leiðbeininga.
Ábyrgð: Sóttvarnalæknir.
Árangur: Leiðbeiningar um viðbrögð vegna tiltekinna sýklalyfjaónæmra baktería hjá mönnum tiltækar.
4.2. Tryggja viðeigandi viðbrögð við greiningu tiltekinna ónæmra baktería hjá dýrum með gerð leiðbeininga.
Ábyrgð: Matvælastofnun.
Árangur: Leiðbeiningar um viðbrögð vegna tiltekinna sýklalyfjaónæmra baktería hjá dýrum tiltækar.
4.3. Tryggja viðeigandi viðbrögð við greiningu tiltekinna ónæmra baktería í matvælum með gerð leiðbeininga.
Ábyrgð: Matvælastofnun.
Árangur: Leiðbeiningar um viðbrögð vegna tiltekinna sýklalyfjaónæmra baktería í matvælum tiltækar.
4.4. Hreinsa skólp með viðeigandi hætti til að minnka útbreiðslu á tilteknum sýklalyfjaónæmum bakteríum.
Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
Árangur: Hlutfall skilgreindra þéttbýlisstaða sem hafa hrint af stað framkvæmdum til úrbóta á hreinsun skólps.
4.5. Tryggja viðeigandi viðbrögð við greiningu tiltekinna ónæmra baktería eða sýklalyfjaleifa í umhverfinu með gerð leiðbeininga.
Ábyrgð: Umhverfis- og orkustofnun.
Árangur: Leiðbeiningar til staðar um viðbrögð við greiningu tiltekinna sýklalyfjaónæmra baktería og sýklalyfjaleifa í umhverfinu.
5. Auka þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi.
Í þessari aðgerð verði sett eftirfarandi þrjú markmið til að auka þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi:
5.1. Efla samstarf við stofnanir Evrópusambandsins.
Ábyrgð: Sóttvarnalæknir, heilbrigðisráðuneyti, Matvælastofnun og atvinnuvegaráðuneyti.
Árangur: Aukin þátttaka í starfi stofnana Evrópusambandsins um málefni er varða sýklalyfjaónæmi.
5.2. Efla samstarf við alþjóðlegar stofnanir.
Ábyrgð: Sóttvarnalæknir og Matvælastofnun.
Árangur: Aukin þátttaka í alþjóðlegu starfi um málefni er varða sýklalyfjaónæmi.
5.3. Efla norrænt samstarf.
Ábyrgð: Sóttvarnalæknir og heilbrigðisráðuneyti.
Árangur: Aukin þátttaka í alþjóðlegu starfi um málefni er varða sýklalyfjaónæmi.
6. Tryggja samhæfingu og stjórn aðgerða gegn sýklalyfjaónæmi til framtíðar.
Eftirfarandi markmið tryggi innleiðingu og framkvæmd aðgerða gegn sýklalyfjaónæmi til framtíðar:
6.1. Innleiðing og framkvæmd aðgerða gegn sýklalyfjaónæmi verði tryggð til framtíðar.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneyti.
Árangur: Samfella og yfirsýn yfir aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi.
Samþykkt á Alþingi 19. maí 2025.