Ferill 402. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.
Þingskjal 523 — 402. mál.
Undirskriftir.
Álit stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
um eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar um þjónustu við fatlað fólk samkvæmt lögum nr. 38/2018.
Með bréfi, dags. 10. febrúar 2025, sendi forseti Alþingis eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar um þjónustu við fatlað fólk samkvæmt lögum nr. 38/2018 til umfjöllunar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í samræmi við 2. gr. reglna um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 13. gr. laga um þingsköp Alþingis. Í skýrslunni er að finna niðurstöður eftirfylgni með þeim niðurstöðum og tillögum til úrbóta sem Ríkisendurskoðun setti fram í skýrslu um þjónustu við fatlað fólk samkvæmt lögum nr. 38/2018 frá 2021. Nefndin fjallaði um þá skýrslu á 152. löggjafarþingi og gaf út álit á henni (þskj. 870, 623. mál).
Í ljósi niðurstaðna eftirfylgniskýrslunnar telur nefndin rétt að gefa út álit um hana.
Nefndin hefur fjallað um eftirfylgniskýrsluna á fundum sínum og fengið til sín gesti frá Ríkisendurskoðun, félags- og húsnæðismálaráðuneyti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Niðurstöður eftirfylgniskýrslu.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um þjónustu við fatlað fólk samkvæmt lögum nr. 38/2018 setti stofnunin fram fjórar tillögur til úrbóta. Að mati Ríkisendurskoðunar hafa viðbrögð við þeim ekki verið viðunandi. Þó komið hafi verið að einhverju leyti til móts við tillögurnar eru margir þeir annmarkar sem bent var á enn fyrir hendi.
Í eftirfylgniskýrslunni kemur fram að engar formlegar breytingar hafi orðið á tilhögun kynningarferla af hálfu félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, nú félags- og húsnæðismálaráðuneytis, hvað varðar lagaramma málaflokksins, sbr. fyrstu tillögu til úrbóta. Í eftirfylgniskýrslunni og fyrir nefndinni vísaði ráðuneytið til þess að við laga- og reglugerðabreytingar sem varða málefni fatlaðs fólks legði það áherslu á gott samráð við bæði hagsmunasamtök og sveitarfélög. Fram kom að Samband íslenskra sveitarfélaga teldi stöðuna hafa batnað eftir því sem áður var. Ráðuneytið hefði þó ekki útfært sérstakan feril um leiðbeiningar og kynningarferli. Að mati nefndarinnar er jákvætt að samráð hafi færst til betri vegar en telur þó að það væri til bóta að ráðuneytið útfærði formlegt verklag sem miðaði að því að treysta í sessi nauðsynlegt samráð í málaflokknum.
Önnur tillaga Ríkisendurskoðunar fól í sér að skýra þyrfti fyrirkomulag fjármögnunar NPA-samninga. Skýra þyrfti fyrirkomulagið þannig að ákvæði laga verði uppfyllt og þeir ekki háðir fyrirvörum vegna óvissu um fjármögnun. Þá þyrfti afgreiðsluferli ráðuneytisins að vera gagnsætt og skilvirkt og sveitarfélög upplýst um afstöðu til samninga hverju sinni. Að mati Ríkisendurskoðunar hefur ekki verið brugðist við þessari tillögu og telur stofnunin brýnt að félags- og húsnæðismálaráðuneyti ljúki endurskoðun á ákvæðum laga nr. 38/2018 sem lúta að notendastýrðri persónulegri aðstoð og reglugerð um sama efni. Þrátt fyrir undirritun samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um breytingar á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk gætir enn ágreinings milli þessara aðila um forsendur, framkvæmd og fjármögnun þjónustunnar til framtíðar. Nefndin hefur ekki forsendur til að kveða á um hvort þörf sé á sérstakri endurskoðun laganna en telur ljóst að enn gæti óvissu og ágreinings hvað fjármögnun NPA-samninga varðar og má þar helst nefna samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu. Að mati nefndarinnar er brýnt að þessi mál séu tekin föstum tökum og að unnið verði að því að leysa úr allri óvissu og ágreiningi sem varðar samninga um notendastýrða persónulega aðstoð.
Að því er varðar þriðju tillögu til úrbóta um að uppfæra þurfi reglur og kynningarefni fyrir notendur þjónustunnar kom fram í skýrslunni og fyrir nefndinni að unnið hefur verið að úrbótum, bæði af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga og félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Mörg sveitarfélög væru að uppfæra heimasíður sínar til að gera upplýsingar aðgengilegri. Stefnt væri að því að efla samstarf við Stafrænt Ísland með það að markmiði að bæta upplýsingagjöf til íbúa. Þó sé ljóst að það taki lengri tíma en reiknað var með að koma á sameiginlegri umsóknargátt. Ráðuneytið vinnur að bættu aðgengi að upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk og réttindi þess í samræmi við landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Markmiðið væri að gera fötluðu fólki kleift að sækja upplýsingar, umsóknareyðublöð og almenna ráðgjöf um réttindi og þjónustuleiðir á vefnum island.is. Að mati nefndarinnar er vissulega jákvætt að unnið sé að umbótum í þessum efnum. Nefndin leggur þó áherslu á að þessari vinnu verði hraðað í samráði við hagsmunasamtök fatlaðs fólks og gætt verði sérstaklega að því að tryggja viðunandi aðgengi að slíkum stafrænum lausnum. Af því tilefni telur nefndin brýnt að lokið verði við innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2102, um aðgengileika vefsetra opinberra aðila.
Lokatillaga Ríkisendurskoðunar varðaði styrkingu ytra og innra eftirlits. Í skýrslunni kemur fram að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hafi lagt áherslu á framkvæmd ytra eftirlits í stað úttekta á starfsemi einstakra þjónustuveitenda. Við ytra eftirlit sé lögð áhersla á umbætur. Fyrirbyggjandi aðgerðir og eftirlitsverkefni séu unnin í rauntíma í ríku samstarfi við þjónustuaðila og því stuðningur við stöðugar umbætur.
Árið 2023 kortlagði stofnunin stöðu innra eftirlits sveitarfélaganna. Við þá vinnu kom skýrt fram hversu misjafnlega væri staðið að eftirliti milli sveitarfélaga, hvaða vægi það hefur og hversu vel í stakk búin sveitarfélögin eru til að sinna því. Við þá kortlagningu kölluðu mörg sveitarfélög eftir því að fá nánari leiðbeiningar og aðstoð við umbætur. Nefndin tekur undir með Ríkisendurskoðun að þótt Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hafi rennt styrkari stoðum undir innra og ytra eftirlit þá sé enn langt í land með að tilhögun og forsendur eftirlitsins geti talist fyllilega viðunandi. Taka verður þessi mál föstum tökum og er mikilvægt að ráðuneytið ljúki setningu reglugerðar þar um.
Bryndís Haraldsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Karl Gauti Hjaltason og Sigmundur Ernir Rúnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 28. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Jónína Brynjólfsdóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk áliti þessu.
Alþingi, 19. maí 2025.
| Vilhjálmur Árnason, form., frsm. |
María Rut Kristinsdóttir. | Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | |
| Grímur Grímsson. | Ingibjörg Davíðsdóttir. | Karl Gauti Hjaltason. | |
| Sigmundur Ernir Rúnarsson. | Sigurjón Þórðarson. | ||