Ferill 403. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 524  —  403. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011 (leiðrétting).

Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
     a.      4. mgr. orðast svo:
                  Réttindagæslumaður tekur ekki til meðferðar ágreining milli einstaklinga, en honum ber að leiðbeina þeim sem til hans leita með slík mál um leiðir sem færar eru innan stjórnsýslu og hjá dómstólum.
     b.      6. mgr. fellur brott.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta felur í sér lagatæknilega leiðréttingu. Með lögum nr. 138/2024, um breytingu á lögum um Mannréttindastofnun Íslands, nr. 88/2024, var gildistöku laga um Mannréttindastofnun Íslands sem áttu að taka gildi 1. janúar 2025 frestað til 1. maí 2025, en við það láðist að uppfæra fyrirmæli um breytingar á málsgreinum í 6. gr. laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Þannig féll brott 4. mgr. 6. gr. í stað 6. mgr.