Ferill 405. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 527 — 405. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um erlenda ríkisborgara á vinnumarkaði.
Frá Sigríði Á. Andersen.
1. Hvert var hlutfall þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd hér á landi af heildarfjölda starfandi á vinnumarkaði á ári hverju árin 2022–2025?
2. Hversu margir erlendir ríkisborgarar, einnig þeir sem hafa íslenskan ríkisborgararétt auk hins erlenda, voru atvinnulausir á ári hverju árin 2022–2025?
3. Hvert var hlutfall sama hóps af heildarfjölda atvinnulausra á ári hverju árin 2022–2025?
4. Frá hvaða ríkjum komu fimm fjölmennustu hópar erlendra ríkisborgara sem skráðir voru atvinnulausir á ári hverju árin 2022–2025?
Skriflegt svar óskast.