Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 528 — 406. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um útsvar og útsvarstekjur sveitarfélaga.
Frá Vilhjálmi Árnasyni.
1. Hvaða sveitarfélög leggja á útsvar sem er undir hámarki 1. mgr. 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995?
2. Hverjar eru útsvarstekjur sveitarfélaga sem leggja ekki á hámarksútsvar og hverjar væru væntar útsvarstekjur þeirra ef þau legðu á hámarksútsvar? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
3. Hvaða áhrif hefur álagt útsvar á greiðslur sveitarfélaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga?
Skriflegt svar óskast.