Ferill 408. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 530 — 408. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga og sveitarstjórnarlögum (endurmat á fjárhagslegum áhrifum).
Frá forsætisnefnd.
I. KAFLI
Breyting á lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016.
1. gr.
2. gr.
II. KAFLI
Breyting á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011.
3. gr.
Hlutaðeigandi ráðherra, sveitarfélög eða Samband íslenskra sveitarfélaga geta að liðnum fimm árum og í síðasta lagi tíu árum frá lagasetningu, setningu stjórnvaldsfyrirmæla eða samþykkt annarra stefnumarkandi ákvarðana, sem fela í sér veruleg áhrif á fjárhag sveitarfélaga, farið þess á leit við ríkisendurskoðanda að endurmat fari fram á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög samkvæmt þessari grein. Leiði skoðun ríkisendurskoðanda í ljós að kostnaður sem hlýst af lagasetningu, stjórnvaldsfyrirmælum eða öðrum stefnumarkandi ákvörðunum sé í verulegu ósamræmi við upprunalegt mat á fjárhagslegum áhrifum skal viðkomandi ráðherra eiga frumkvæði að viðeigandi ráðstöfunum sem geta m.a. falið í sér tillögur um breytingu á fjármögnun eða þjónustukröfum. Um ákvörðun ríkisendurskoðanda, hvort taka skuli beiðni til greina, fer samkvæmt lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga.
4. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er flutt af forsætisnefnd í samráði við embætti ríkisendurskoðanda og innviðaráðuneytið.
Tilefni frumvarpsins eru fyrirhugaðar tillögur innviðaráðherra sem fram komu á síðasta ári um breytingu á 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, þar sem m.a. var gert ráð fyrir að ríki eða sveitarfélög gætu farið þess á leit við ríkisendurskoðanda að endurmeta áhrif lagasetningar, setningar stjórnvaldsfyrirmæla eða samþykktar annarra stefnumarkandi ákvarðana á fjárhag sveitarfélaga. Jafnframt var gert ráð fyrir breytingu á starfssviði og eftirlitsheimildum ríkisendurskoðanda, sbr. 4. og 10. gr. laga nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Eftir umfjöllun í forsætisnefnd og í samráði við innviðaráðuneytið varð það niðurstaða forsætisnefndar að í samræmi við verkaskiptingu handhafa ríkisvalds, sbr. 2. gr. stjórnarskrárinnar, væri rétt að forsætisnefnd hefði frumkvæði að flutningi frumvarps um breytingu á lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Var þá litið til þess að ríkisendurskoðandi væri einn af trúnaðarmönnum Alþingis og tillagan fæli í sér nýtt verkefni fyrir embætti hans. Með bréfi innviðaráðherra, dags. 1. apríl 2025, var þess farið á leit að forsætisnefnd stæði að flutningi frumvarps um breytingu á ákvæðum laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga og sveitarstjórnarlögum og samþykkti nefndin beiðnina.
Frumvarpið er lagt fram í tengslum við frumvarp innviðaráðherra um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (mat á fjárhagslegum áhrifum), sem lagt hefur verið fram á yfirstandandi þingi, þskj. 304, 272. mál. Í greinargerð með frumvarpinu eru jafnframt rakin framangreind samskipti ráðuneytisins og forsætisnefndar og þess getið að samráð hafi verið haft við ríkisendurskoðanda um samningu þess. Við það er miðað að frumvarp þetta og frumvarp innviðaráðaherra fylgist að við meðferð Alþingis á þeim. Verði frumvörpin samþykkt sem lög frá Alþingi verður að gera ráð fyrir að frumvarp innviðaráðherra verði samþykkt á undan.
Frumvarpið felur í sér nýmæli þar sem gert er ráð fyrir að Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélög eða hlutaðeigandi ráðherra geti farið þess á leit við ríkisendurskoðanda að hann endurmeti fjárhagsleg áhrif lagasetningar, stjórnvaldsfyrirmæla eða stefnumarkandi ákvarðana fimm og allt að tíu árum eftir setningu þeirra. Þess er freistað að með aðkomu ríkisendurskoðanda sé dregið úr líkum á því að ríki og sveitarfélög eigi í langvinnum deilum vegna áhrifa stefnumörkunar stjórnvalda á fjárhag sveitarfélaga. Ekki þykir þó nauðsynlegt að gera ráð fyrir endurmati nema einu sinni að liðnum fimm árum og í síðasta lagi að liðnum tíu árum. Eftir að tíu ár eru liðin frá lagasetningu er litið svo á að öll umgjörð þjónustuvæntinga og tekjustofna sveitarfélaga hafi tekið slíkum breytingum að ekki sé hægt að meta einstaka ráðstöfun úr samhengi við aðra áhrifaþætti. Er því ekki gert ráð fyrir endurskoðun einstaks áhrifamats gagnvart áður ráðgerðri fjármögnum að meira en tíu árum liðnum. Nærtækara þykir að svo löngum tíma liðnum að fram fari breiðara samtal um tekjustofna sveitarfélaga og almenna hlutverkaskiptingu ef tilefni er til.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. og 2. gr.
Með því að fá ríkisendurskoðanda umrætt hlutverk er honum falið að skera úr ágreiningi milli ríkis og sveitarfélaga um forsendur að baki stefnumarkandi ákvörðunum sem fela í sér veruleg áhrif á fjárhag sveitarfélaga. Líta verður svo á að slíkt fyrirkomulag sé engu að síður í samræmi við það hlutverk ríkisendurskoðanda að hafa eftirlit með því að fjárheimildir og hvers konar verðmæti séu nýtt og ráðstafað á hagkvæman og réttmætan hátt og í samræmi við forsendur og ákvarðanir Alþingis, sbr. 1. mgr. 3. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Ákvarðanir Alþingis birtast m.a. í fjárlögum, almennri löggjöf og ályktunum þingsins. Forsætisnefnd hefur leitað samráðs við ríkisendurskoðanda um þetta atriði og er það mat hans að framangreint viðfangsefni falli að starfssviði ríkisendurskoðanda og eftirliti hans með ráðstöfun opinberra fjármuna.
Um 3. gr.
Um 4. gr.