Ferill 337. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 534 — 337. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Snorra Mássyni um túlkaþjónustu í atvinnumálum.
1. Hver hefur verið heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess vegna túlkaþjónustu í atvinnumálum undanfarin fimm ár? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum og málefnasviðum.
Í eftirfarandi töflu er samantekt á heildarkostnaði Vinnumálastofnunar vegna túlkaþjónustu undanfarin fimm ár. Ekki er unnt að greina með nákvæmum hætti hvaða kostnaður er beintengdur túlkaþjónustu vegna „atvinnumála“ en þjónusta Vinnumálastofnunar lítur jafnan að því að virkja fólk til þátttöku á vinnumarkaði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hvorki ráðuneytið né aðrar stofnanir þess keyptu túlkaþjónustu vegna „atvinnumála“ á sama tímabili.
2. Hvaða reglur gilda um kaup á túlkaþjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess?
Ekki eru í gildi sérstakar reglur um kaup á túlkaþjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess umfram þær reglur sem almennt gilda um opinber innkaup, sbr. rammasamning Ríkiskaupa um túlka- og þýðingarþjónustu. 1
3. Er til sundurliðun á aðkeyptri þjónustu og því vinnuframlagi sem þjónustan krefst þegar hún er unnin af fastráðnum starfsmönnum?
Hjá Vinnumálastofnun starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks með breiðan bakgrunn og margvíslega tungumálakunnáttu. Þegar mögulegt reynist sinnir starfsfólk samskiptum við skjólstæðinga stofnunarinnar án aðkomu túlka. Launakostnaður starfsfólks er ekki innifalinn í framangreindum tölum og Vinnumálastofnun heldur ekki sérstaklega utan um kostnað vegna vinnuframlags starfsmanna þann tíma sem þeir þjónusta einstaklinga á erlendum málum.
1 www.midlaegirsamningar.is/is/tulka-og-thydingathjonusta