Ferill 211. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 536  —  211. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Erni Rúnarssyni um veiðidagbækur hvalveiðileyfishafa.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu oft hafa hvalveiðileyfishafar afhent veiðidagbækur til lögbærra eftirlitsaðila frá árinu 2014? Svar óskast sundurliðað eftir árum, leyfishöfum og fjölda afhendinga.
     2.      Hversu oft gerðu eftirlitsaðilar athugasemdir við afhendingu veiðidagbóka?
     3.      Hafi orðið misbrestur á afhendingu veiðidagbóka, hvað hafa lögbærir eftirlitsaðilar aðhafst?

    Í svari þessu er gengið út frá því að spurt sé um þær dagbækur sem tilgreindar eru í veiðileyfum gefnum út frá árinu 2014. Í leyfum til veiða á langreyði árin 2014–2018 og árin 2019– 2023 segir í 5. gr. að skipstjóri skuli halda dagbók yfir veiðar og henni eða afriti hennar skuli skilað til Fiskistofu í lok vertíðar. Í veiðileyfum til hrefnuveiða árin 2014–2018 og árin 2019–2023 segir í 7. gr. að skipstjóri skuli halda dagbók yfir veiðar og henni skilað til Fiskistofu í lok hverrar vertíðar.

Langreyður     
Ár Veiði ástunduð Leyfishafi Fjöldi afhendinga Athugasemdir Viðbrögð
2014 Já Hvalur hf. Engin Nei Engin
2015 Já Hvalur hf. Engin Nei Engin
2016 Nei Hvalur hf. – – –
2017 Nei Hvalur hf. – – –
2018 Já Hvalur hf. Engin Já Kært til lögreglu
2019 Nei Hvalur hf. – – –
2020 Nei Hvalur hf. – – –
2021 Nei Hvalur hf. – – –
2022 Já Hvalur hf. 1* Nei Engin
2023 Já Hvalur hf. 1* Nei Engin
2024 Nei Hvalur hf. – – –
*Aðeins er um eina afhendingu að ræða í lok vertíðar.

Hrefna     
Ár Veiði ástunduð Leyfishafi Fjöldi afhendinga Athugasemdir Viðbrögð
2014 Nei Hafsteinn SK-3 (1850) – – –
2014 Já Hrafnreyður KÓ-100 (1324) Engin Nei Engin
2015 Nei Hafsteinn SK-3 (1850) – – –
2015 Já Hrafnreyður KÓ-100 (1324) Engin Nei Engin
2016 Já Rokkarinn GK-16 (1850) Engin Nei Engin
2016 Já Hrafnreyður KÓ-100 (1324) Engin Nei Engin
2016 Já Halldór Sigurðsson ÍS-14 (1403) Engin Nei Engin
2017 Já Rokkarinn GK-16 (1850) Engin Nei Engin
2017 Já Hrafnreyður KÓ-100 (1324) Engin Nei Engin
2017 Nei Halldór Sigurðsson ÍS-14 (1403) – – –
2018 Já Hrafnreyður KÓ-100 (1324) 1* Já Já****
2018 Já Rokkarinn GK-16 (1850) 1** Já Já****
2018 Nei Halldór Sigurðsson ÍS-14 (1403) – – –
2019 Nei Hrafnreyður KÓ-100 (1324) – – –
2019 Nei Rokkarinn GK-16 (1850) – – –
2020 Nei Hrafnreyður KÓ-100 (1324) – – –
2020 Nei Rokkarinn GK-16 (1850) – – –
2021 Nei Hrafnreyður KÓ-100 (1324) – – –
2021 Já Rokkarinn GK-16 (1850) 1*** Nei Engin
2022 Nei Hrafnreyður KÓ-100 (1324) – – –
2022 Nei Rokkarinn GK-16 (1850) – – –
2023 Nei Hrafnreyður KÓ-100 (1324) – – –
2023 Nei Rokkarinn GK-16 (1850) – – –
2024 Nei Engin leyfi í gildi – – –
*Afhent fyrir árin 2014–2018.
**Afhent fyrir árin 2016–2018.
***Aðeins er um eina afhendingu að ræða í lok vertíðar.
****Fiskistofa krafðist skila á veiðidagbók.