Ferill 409. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 539  —  409. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um endómetríósu og kvennadeild Landspítala.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hversu löng bið er eftir þjónustu endómetríósuteymis Landspítala?
     2.      Hver er biðtími eftir endómetríósutengdum aðgerðum á Landspítalanum, bæði hjá nýgreindum og þeim sem eru með staðfesta endómetríósu?
     3.      Hver var fjöldi aðgerða nýgreindra sem og fólks með staðfesta endómetríósu á Landspítala, Klíníkinni og öðrum aðgerðarstöðum á árunum 2022–2024? Svar óskast sundurliðað eftir árum og aðgerðarstöðum.
     4.      Hversu margir einstaklingar eru greindir með endómetríósu á Íslandi? Svar óskast sundurliðað eftir greiningarfjölda á síðustu fimm árum. Ef slíkar upplýsingar er ekki að finna, stendur til að skrásetja endómetríósu skv. 1. mgr. 8. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007?
     5.      Hyggst ráðherra útvista færri aðgerðum á sjúklingum með endómetríósu til einkaaðila? Ef svo er, hvernig hyggst ráðherra tryggja þjónustu við sjúklingana?
     6.      Hversu margir aðgerðardagar eru að jafnaði á kvennadeild Landspítalans í hverri viku?
     7.      Telur ráðherra að fyrirkomulag og staða kvennadeildarinnar sé þannig að hún sé í stakk búin til að bæta þar við fjölmörgum sjúklingum með endómetríósu sem einkaaðilar hafa sinnt á undanförnum árum?


Skriflegt svar óskast.