Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 541, 156. löggjafarþing 147. mál: skipulag haf- og strandsvæða og skipulagslög (svæðisráð o.fl.).
Lög nr. 29 3. júní 2025.
I. KAFLI
Breyting á lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018.
Leiki vafi á því hvort tiltekin framkvæmd eða starfsemi samræmist gildandi strandsvæðisskipulagi skal leyfisveitandi leita ráðgefandi álits Skipulagsstofnunar áður en leyfi er veitt. Skipulagsstofnun getur einnig gefið slíkt ráðgefandi álit að eigin frumkvæði, telji hún tilefni til. Skipulagsstofnun getur óskað eftir umsögn viðkomandi svæðisráðs áður en hún veitir álit samkvæmt þessari málsgrein.
II. KAFLI
Breyting á skipulagslögum, nr. 123/2010.
Þingskjal 541, 156. löggjafarþing 147. mál: skipulag haf- og strandsvæða og skipulagslög (svæðisráð o.fl.).
Lög nr. 29 3. júní 2025.
Lög um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða og skipulagslögum (svæðisráð o.fl.).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- Orðin „eða endurskoðun á strandsvæðisskipulagi“ í 1. málsl. 1. mgr. falla brott.
- 3. mgr. orðast svo:
2. gr.
2. mgr. 8. gr. laganna orðast svo:Leiki vafi á því hvort tiltekin framkvæmd eða starfsemi samræmist gildandi strandsvæðisskipulagi skal leyfisveitandi leita ráðgefandi álits Skipulagsstofnunar áður en leyfi er veitt. Skipulagsstofnun getur einnig gefið slíkt ráðgefandi álit að eigin frumkvæði, telji hún tilefni til. Skipulagsstofnun getur óskað eftir umsögn viðkomandi svæðisráðs áður en hún veitir álit samkvæmt þessari málsgrein.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 10. gr. laganna:- Við lokamálslið bætist: eða siglingaöryggi er ógnað.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá skal tekið mið af öðrum stefnum og áætlunum sem hafa áhrif á nýtingu og vernd haf- og strandsvæða.
4. gr.
Orðin „drög að“ í 2. málsl. 11. gr. laganna falla brott.5. gr.
1. mgr. 14. gr. laganna fellur brott.6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:- Á eftir orðunum „framsetningu strandsvæðisskipulags“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: nýtingarflokka í strandsvæðisskipulagi og skilgreiningu þeirra sem.
- 3. mgr. orðast svo:
7. gr.
Í stað orðanna „og Austfirði“ í 7. tölul. ákvæðis til bráðabirgða í lögunum kemur: Austfirði, Eyjafjörð og Skjálfandaflóa.8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 22. maí 2025.