Ferill 344. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 543  —  344. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um búsetu umsækjenda um alþjóðlega vernd.


     1.      Hversu mörg hótelherbergi, íbúðir, herbergi eða annað húsnæði hefur Vinnumálastofnun keypt eða tekið á leigu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd frá og með árinu 2020? Svar óskast sundurliðað eftir árum, tegund gististaðar og sveitarfélögum.
    Vinnumálastofnun tók við þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd þann 1. júlí 2022 og því liggja umbeðnar upplýsingar ekki fyrir hjá stofnuninni fyrir þann tíma.
    Í töflu 1 má sjá yfirlit yfir búsetuúrræði sem Vinnumálastofnun tók á leigu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd frá 1. júlí 2022 til 1. maí 2025 en stofnunin festi ekki kaup á húsnæði fyrir framangreinda einstaklinga á umræddu tímabili.

    Tafla 1.
Ár Fjöldi eigna/ herbergja Tegund Sveitarfélag
2022 1 heimavist Borgarbyggð
2022 1 hótel Grindavík
2022 3 gistiheimili Hafnarfjörður
2022 1 hótel Hafnarfjörður
2022 2 fjölbýlishús Reykjanesbær
2022 1 gistiheimili Reykjanesbær
2022 1 íbúðareign Reykjanesbær
2022 1 hótel Reykjavík
2022 1 gistiskáli Reykjavík
2022 5 gistiheimili Reykjavík
2022 1 skrifstofa Reykjavík
2022 1 gistiheimili Vestmannaeyjar
2023 1 íbúðareign Akureyri
2023 1 heimavist Bláskógabyggð
2023 36 hótelherbergi Hafnarfjörður
2023 1 hótel Hvalfjarðarsveit
2023 1 gistiheimili Kópavogur
2023 4 gistiheimili Reykjanesbær
2023 1 íbúðarherbergi Reykjanesbær
2023 1 fjölbýlishús Reykjanesbær
2023 50 hótelherbergi Reykjanesbær
2023 2 gistiheimili Reykjavík
2023 1 skrifstofa Reykjavík
2023 1 skrifstofa – einbýli Reykjavík
2023 1 íbúðareign Suðurnesjabær
2024 7 hótelherbergi Hafnarfjörður
2024 1 fjölbýlishús Reykjavík
2024 1 íbúðareign Reykjavík
2024 1 gistiskáli Reykjavík
     Heimild: Vinnumálastofnun.

     2.      Hversu margir dvöldu á þeim gististöðum sem spurt er um hinn 1. apríl 2025 og hversu lengi höfðu þeir dvalið þar að meðaltali? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum, tegund gististaðar og ríkisfangi einstaklinga sem þar dvöldu.
    Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun í tengslum við fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd, sem búsettir voru í búsetuúrræðum stofnunarinnar 1. maí sl., komu flestir frá Venesúela, Úkraínu, Palestínu, Sómalíu eða Írak, sbr. töflu 2, en í töflunni er þjóðerni tiltekið sem ótilgreint þar sem fjöldi einstaklinga var undir tíu. Vakin er athygli á að í svari þessu er miðað við 1. maí 2025 í stað 1. apríl 2025 líkt og fyrirspurnin lýtur að en örðugt er fyrir Vinnumálastofnun að taka saman umræddar upplýsingar miðað við tilteknar dagsetningar aftur í tímann.

Tafla 2.
Sveitarfélag Fjöldi í úrræði Meðaldvalartími í dögum Tegund VEN ÚKR PAL SÓM ÍRAK Ótilgreint
Hafnarfjörður 109 180,3 hótel 71 12 26
Hafnarfjörður 33 142,6 gistiheimili 25 8
Kópavogur 45 156,5 gistiheimili 24 15 6
Reykjavík 0 1,1 skrifstofa
Reykjavík 16 86,7 íbúðareign 16
Reykjavík 36 117,7 gistiheimili 12 24
Reykjavík 86 88,2 gistiskáli 54 21 11
Reykjanesbær 118 115,5 fjölbýlishús 32 20 11 10 45
Reykjanesbær 128 117 gistiheimili 94 14 20
Heimild: Vinnumálastofnun.

     3.      Hversu margir fyrrnefndir gististaðir voru mannlausir að hluta eða í heild 1. apríl 2025? Svar óskast sundurliðað eftir tegund gististaðar og sveitarfélögum.
    Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru tíu búsetuúrræði stofnunarinnar, fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, mannlaus að hluta eða í heild 1. maí 2025, sjá nánar í töflu 3. Vakin er athygli á að í svari þessu er miðað við 1. maí 2025 í stað 1. apríl 2025 líkt og fyrirspurnin lýtur að en örðugt er fyrir Vinnumálastofnun að taka saman umræddar upplýsingar miðað við tilteknar dagsetningar aftur í tímann.

     4.      Hversu lengi höfðu þeir gististaðir sem voru mannlausir 1. apríl 2025 staðið auðir og hvers vegna?
    Líkt og áður miðast umbeðnar upplýsingar við 1. maí 2025, sbr. töflu 3, þar sem örðugt er fyrir Vinnumálastofnun að taka saman umræddar upplýsingar miðað við tilteknar dagsetningar aftur í tímann.

    Tafla 3.
Sveitarfélag Tegund húsnæðis Skýring
Akureyri íbúðareign Fækkun umsækjenda, hagræðing. Ónýtt frá febrúar 2025.
Hafnarfjörður gistiheimili Fækkun umsækjenda, hagræðing. Ónýtt frá nóvember 2024.
Hvalfjarðarsveit hótel Fækkun umsækjenda, hagræðing. Ónýtt frá september 2024.
Reykjanesbær íbúðarherbergi Fækkun umsækjenda, hagræðing. Ónýtt frá mars 2025.
Reykjanesbær gistiheimili Fækkun umsækjenda, hagræðing. Ónýtt frá nóvember 2024.
Reykjanesbær fjölbýlishús Fækkun umsækjenda, hagræðing. Ónýtt frá apríl 2025.
Reykjavík gistiheimili Fækkun umsækjenda, hagræðing. Ónýtt frá apríl 2025.
Reykjavík íbúðareign Fækkun umsækjenda, hagræðing. Ónýtt frá apríl 2025.
Reykjavík gistiskáli Fækkun umsækjenda, húsnæði nýlega tekið í notkun og það því enn ekki fullnýtt.

Reykjavík

skrifstofa
Úrræðið notað sem fyrsta gisting fyrir umsækjendur sem koma að nóttu til eða um helgar. Enginn í gistingu 1. maí 2025.
    Heimild: Vinnumálastofnun.

     5.      Hversu margir einstaklingar sem fengið hafa alþjóðlega vernd búa í húsnæði á vegum sveitarfélaganna? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum og ríkisfangi.
    Hvorki félags- og húsnæðismálaráðuneyti né Vinnumálastofnun búa yfir upplýsingum um hve margir einstaklingar, sem fengið hafa alþjóðlega vernd hér á landi, búa í félagslegu húsnæði á vegum sveitarfélaga.