Ferill 249. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 547 — 249. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um rekstur ÁTVR og lýðheilsumarkmið.
1. Telur ráðherra eðlilegt að rekstur ÁTVR falli undir málefnasvið fjármála- og efnahagsráðherra í ljósi þess að reksturinn grundvallast á lögum um verslun með áfengi og tóbak, nr. 86/2011, en lýðheilsumarkmið þeirra laga byggjast m.a. á að bæta lýðheilsu og á samfélagslegri ábyrgð, að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks?
Hér á landi hefur rekstur ÁTVR fallið undir málefnasvið fjármála- og efnahagsráðherra um langa hríð. Til að mynda var kveðið á hlutverk stofnunarinnar og yfirstjórn fjármálaráðherra yfir henni í 2. gr. laga nr. 69/1969, um verzlun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf. Fyrrnefnd lög voru leyst af hólmi með núgildandi lögum um verslun með áfengi og tóbak, nr. 86/2011.
Í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi er ríkið með einkaleyfi á smásölu áfengis. Þar er þó mismunandi undir málefnasvið hvaða ráðuneytis rekstur áfengiseinkasölu fellur. Í Noregi fer smásala áfengis fram undir merkjum Vinmonopolet, sem fellur undir málefnasvið heilbrigðis- og umönnunarráðuneytisins. Í Svíþjóð fer smásala áfengis fram undir merkjum Systembolaget, sem fellur undir málefnasvið fjármálaráðuneytisins, og í Finnlandi fer smásala áfengis með meira en 8% styrkleika og gosblanda með meira en 5,5% styrkleika fram undir merkjum Alko, sem fellur undir málefnasvið félags- og heilbrigðisráðuneytisins.
Með forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 5/2025, voru áfengislög, nr. 75/1998, færð frá dómsmálaráðuneyti til fjármálaráðuneytis, sbr. c-lið 10. tölul. 5. gr. Í 6. gr. laga nr. 86/2011 eru helstu verkefni ÁTVR rakin, en þau snúa að meginstefnu að rekstrarlegum atriðum tengdum smásölu á áfengi og heildsölu á tóbaki. Markmiðsákvæði laganna eru skýr og kveða m.a. á um bætta lýðheilsu og samfélagslega ábyrgð, stýringu á aðgengi að áfengi og tóbaki og verndun ungs fólks gegn neyslu áfengis og tóbaks. Það er mat ráðherra að í ljósi skýrra markmiðsákvæða laganna mæli því ekkert í mót að rekstur ÁTVR haldi áfram að heyra undir fjármála- og efnahagsráðherra.
2. Telur ráðherra eðlilegra og heppilegra að rekstur ÁTVR væri á málefnasviði annars ráðherra og ef svo er, hvaða ráðherra?
Sjá svar við 1. lið fyrirspurnarinnar. Það er mat heilbrigðisráðherra að ef flytja ætti rekstur ÁTVR frá fjármála- og efnahagsráðherra til annars ráðherra væri heppilegast að færa hann til heilbrigðisráðherra. Ef slíkur flutningur færi fram væri jafnframt eðlilegt að áfengislög, nr. 75/1998, myndu færast samhliða til heilbrigðisráðherra.