Ferill 180. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 548  —  180. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um þjónustu talmeinafræðinga.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver er afstaða ráðherra til athugasemda og áskorana foreldra um þjónustu talmeinafræðinga við börn utan skrifstofu og í nærumhverfi barnanna? Hyggst ráðherra bregðast við þeim athugasemdum og áskorunum?

    Núverandi fyrirkomulag um veitingu þjónustu byggist á samkomulagi milli velferðarráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skiptingu ábyrgðar vegna talmeinaþjónustu við börn með framburðarfrávik, málþroskafrávik og stam sem undirritað var í maí árið 2014. Samkvæmt samkomulaginu bera sveitarfélög ábyrgð á nauðsynlegri talþjálfun vegna minni háttar framburðar- og málþroskafrávika en ríkið ber ábyrgð á þjálfun barna með alvarlegri frávik með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga fyrir talþjálfun hjá sjálfstætt starfandi talmeinafræðingum.
    Jafnframt er tilgreint í rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og Félags talmeinafræðinga á Íslandi að talmeinafræðingi sé heimilt að veita meðferð í nærumhverfi í sérstökum tilfellum vegna samskipta við forráðamenn eða líkamlegs ástands skjólstæðings. Gengið er út frá því að hvorki SÍ né talmeinafræðingur beri kostnað af aðstöðu eða rými til þjálfunar. Því greiðir SÍ um tvo þriðju hluta af hefðbundnu þjálfunargjaldi vegna meðferðar í nærumhverfi þar sem ekki er gert ráð fyrir aðstöðugjaldi vegna þjónustunnar.
    Frá því að ábyrgðarskipting var ákveðin fyrir rúmum áratug hafa orðið miklar breytingar, m.a. með tilkomu nýrrar reglugerðar um skólaþjónustu leik- og grunnskóla, þar sem ítrekað er mikilvægi þess að veita nauðsynlega þjónustu innan skóla, og með tilkomu farsældarlaganna. Ætlunin með skiptingunni var m.a. að jafna aðgengi barna að þjónustu en of mörg börn bíða nú eftir talmeinaþjónustu hjá ríki og sveitarfélögum. Því þarf að breyta. Ljóst er að endurskoða þarf ábyrgðarskiptingu að teknu tilliti til áðurnefndra breytinga með aukna samvinnu að leiðarljósi. Auk þess þarf að meta sérstaklega hvernig veiting þjónustu horfir við börnum með fjölþættari vanda en varðar málþroska einvörðungu, og við börnum sem hafa ekki íslensku að móðurmáli.
    Ráðuneytið hefur undanfarna mánuði unnið að gerð miðlægs biðlista vegna þjónustu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga. Samhliða því hefur verið unnið að breyttu fyrirkomulagi tilvísana til talmeinafræðinga en greiðsluþátttaka SÍ er nú skilyrt við tilvísun læknis. Til að heildarsýn fáist yfir veitingu þjónustu og bið eftir henni er mikilvægt að umsýsla biðlista sé með rafrænum hætti. Eru vonir bundnar við að aukið samstarf milli talmeinafræðinga sem starfa sjálfstætt og þeirra sem starfa hjá skólaþjónustu sveitarfélaga skili því að börn fái rétta þjónustu í viðeigandi umhverfi.
    Styrkja þarf þjónustu hjá sveitarfélögum og innan heilbrigðiskerfisins ásamt því að efla samvinnu á milli þjónustuaðila þannig að við veitingu þjónustu séu hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Stefnt er að endurskoðun fyrrnefndrar ábyrgðarskiptingar þegar hópur um þjónustu talmeinafræðinga við börn hefur skilað niðurstöðum sínum en vinna hópsins er á lokametrunum. Á meðan unnið er að slíkri endurskoðun hefur ráðherra beint því til SÍ að endurskoða viðeigandi ákvæði í samningi um talmeinaþjónustu varðandi veitingu nauðsynlegrar þjónustu í nærumhverfi barna með það að markmiði að efla hana.