Ferill 220. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 550 — 220. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994 (hunda- og kattahald).
Frá meiri hluta velferðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Félagi íslenskra ofnæmis- og ónæmislækna, Félagi ábyrgra hundaeigenda, Kattavinafélagi Íslands, ÖBÍ réttindasamtökum, Astma- og ofnæmisfélagi Íslands, Baráttuhópi fyrir bættri velferð dýra og Húseigendafélaginu.
Nefndinni bárust 16 umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Í núgildandi lögum um fjöleignarhús er hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum háð samþykki 2/ 3 hluta eigenda sem hafa sameiginlegan inngang eða stigagang. Í þeim tilvikum þar sem ekki er um sameiginlegan inngang eða stigagang að ræða er ekki þörf á samþykki annarra eigenda fyrir hunda- og kattahaldi í húsinu, þó ber að tilkynna húsfélagi skriflega um dýrahald og afhenda því ljósrit af leyfi frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem við á.
Með frumvarpi þessu er lagt til að hunda- og kattahald verði framvegis ekki háð samþykki annarra eigenda í fjöleignarhúsum, hvort sem um sameiginlegan inngang eða stigagang er að ræða, og jafnframt að fella brott kröfu um að tilkynna þurfi húsfélagi skriflega um dýrahald. Þá er lagt til að húsfélög geti enn sett nánari reglur um hunda- og kattahald.
Umfjöllun nefndarinnar.
Nefndin fjallaði um hvaða áhrif þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu kunna að hafa á íbúa í fjöleignarhúsum, sér í lagi á þá sem eru með ofnæmi fyrir hundum og/eða köttum. Í umsögnum kom fram að dýr geti valdið losun ofnæmisvaka sem í ákveðnum tilvikum geti borist í sameign eða yfir í aðrar íbúðir. Meiri hluti velferðarnefndar telur mikilvægt að slíkar áhyggjur séu teknar alvarlega, en lítur jafnframt svo á að með skýrari lagagrundvelli sé unnt að mæta bæði réttindum gæludýraeigenda og þörf á vernd einstaklinga með ofnæmi.
Þá komu einnig fram öndverð sjónarmið, svo sem um það að hunda- og kattaeigendur hafi neyðst til þess að láta frá sér dýr eða jafnvel aflífa þau vegna þess að þeim hafi verið ómögulegt að finna húsnæði þar sem dýr eru leyfð. Gæludýrahald hafi jákvæð áhrif á heilsu fólks og geti jafnvel unnið gegn þunglyndi og einmanaleika.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að markmið þessara breytinga sé að tryggja betur rétt hunda- og kattaeigenda í fjöleignarhúsum án þess þó að ganga um of á rétt annarra eigenda. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að húsfélag geti til að mynda sett nánari reglur um hunda- og kattahald með samþykki allra eigenda enda séu þær eðlilegar, málefnalegar og á jafnræði reistar. Með því væri unnt að koma til móts við þarfir íbúa með hunda- eða kattaofnæmi eða fælni gagnvart slíkum dýrum svo lágmarka megi áhrif dýrahalds á viðkomandi íbúa. Eigendur geti þannig sammælst um fyrirkomulag gæludýrahalds, svo sem um umgengni og afnot á einstökum hlutum sameignar, en girt sé þó fyrir að slíkar reglur gangi svo langt að þær útiloki í raun gæludýrahald. Húsfélögum verði heimilt, með samþykki 2/ 3 hluta eigenda, að leggja bann við dýrahaldi tiltekins eiganda dýrs valdi það íbúum verulegum ama, ónæði og truflunum og eigandi dýrs ræður ekki bót þar á. Tekin eru dæmi um að unnt væri að banna tilteknum eiganda dýrahald vegna mikils og langvarandi gelts hunds sem eigandanum hefur ekki tekist að ráða bót á.
Meiri hluti nefndarinnar tekur undir þau sjónarmið að enginn eigi að líða heilsubrest vegna alvarlegs ofnæmis eða astma vegna dýra í sama fjöleignarhúsi. Meiri hlutinn bendir á að ákvæði frumvarpsins geri ráð fyrir slíkum tilvikum og að hægt verði að beita ákveðnum úrræðum, t.d. með setningu reglna og heimild til að leggja bann við dýrahaldi tiltekins eiganda dýrs. Gildandi lög koma ekki í veg fyrir að hundar eða kettir séu leyfðir í fjöleignarhúsi jafnvel þótt einhverjir íbúa hafi ofnæmi fyrir þeim enda ekki gerð krafa um samþykki allra fyrir því að dýr sé leyft. Þá er lagaumhverfi hvað varðar dýrahald í fjöleignarhúsum mun sveigjanlegra í nágrannalöndum og tekur meiri hlutinn undir þau markmið frumvarpsins að færa íslenska löggjöf nær því sem þar þekkist.
Breytingartillögur.
Lagðar eru til fáeinar lagfæringar á orðalagi sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Við 2. gr.
a. Í stað orðanna „annarra eigenda“ í a-lið komi: eigenda fjöleignarhúss.
b. Í stað orðanna „öðrum íbúum“ í 1. málsl. e-liðar komi: íbúum fjöleignarhúss.
2. Í stað orðanna „öðrum íbúum“ í b-lið 3. gr. komi: íbúum fjöleignarhúss.
Alþingi, 21. maí 2025.
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, form., frsm. |
Aðalsteinn Leifsson. | Grétar Mar Jónsson. | |
| Kristján Þórður Snæbjarnarson. | Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. | ||