Ferill 413. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 552 — 413. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um Evróputilskipun um fráveitumál.
Frá Ólafi Adolfssyni.
1. Hver er staða innleiðingar tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/3019 um hreinsun skólps frá þéttbýli á Íslandi og hvaða vinnu hefur ráðuneytið hafið í tengslum við undirbúning hennar?
2. Hefur verið lagt mat á hvaða breytingar verði nauðsynlegt að gera á íslenskri löggjöf og framkvæmd fráveitumála til að uppfylla skilyrði nýju tilskipunarinnar?
3. Hvaða áhrif er búist við að tilskipunin hafi á sveitarfélög með tilliti til fjárfestinga, rekstrar og framkvæmda?
4. Hvenær má vænta þess að tilskipunin verði innleidd í íslensk lög á Alþingi?
Skriflegt svar óskast.