Ferill 415. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 556 — 415. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um innleiðingu EES-gerða.
Frá Berglindi Hörpu Svavarsdóttur.
1. Hvaða vinna stendur yfir á vegum ráðuneytisins gegn gullhúðun við innleiðingu EES-gerða?
2. Er unnið eftir þeim tillögum til úrbóta sem nefndar eru í skýrslu starfshóps um aðgerðir gegn gullhúðun EES-gerða til utanríkisráðherra í maí 2024?
3. Telur ráðherra að festa eigi í lög um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, að meginreglan verði að ekki sé gengið lengra í innleiðingarlöggjöfinni heldur en leiðir af lágmarkskröfum þeirrar EES-gerðar sem verið er að innleiða, eins og vikið er að í niðurlagi skýrslu starfshópsins?
Skriflegt svar óskast.